Stytting vinnuvikunnar kostar ríkissjóð um 6,9 milljarða króna á ári miðað við verðlag í ár. Kostnaðaraukinn er fyrst og fremst rakinn til styttingar vinnutíma vaktavinnufólks, en samanlagður kostnaður frá innleiðingu breytinganna er talinn nema um 35 milljörðum króna.
Morgunblaðið greinir frá þessu í dag og vísar í skýrslu fjármála- og efnahagsráðherra sem lögð hefur verið fram á Alþingi að beiðni Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins og fleiri þingmanna.
Samkvæmt skýrslunni var árlegur viðbótarkostnaður vegna styttingar vinnutíma vaktavinnufólks áætlaður 5,5 milljarðar króna árið 2022. Sú fjárhæð jafngildir um 6,9 milljörðum á verðlagi þessa árs. Ekki er hins vegar talinn hafa hlotist sambærilegur kostnaðarauki af styttingu vinnuvikunnar hjá dagvinnufólki.
Guðlaugur Þór segir í samtali við Morgunblaðið að breytingarnar hafi reynst ýmsum opinberum stofnunum erfiðar, ekki síst heilbrigðisstofnunum og löggæslu.
„Þetta eru verulegar fjárhæðir og við hljótum að spyrja okkur að því, þar sem við setjum tæpa sjö milljarða á ári í þetta, hvort við viljum nota þessa fjármuni í styttingu vinnuvikunnar eða hvort vilji standi til þess að gera þetta með einhverjum öðrum hætti,“ segir hann.
Hann telur mikilvægt að meta hverju breytingarnar hafi skilað og hvort rétt sé að forgangsraða fjármunum með þessum hætti. „Þetta er sannarlega ekki ókeypis,” segir hann.
Í umfjöllun Morgunblaðsins er einnig vísað til umsagnar Runólfs Pálssonar, forstjóra Landspítalans, um fjárlagafrumvarpið þar sem fram kemur að vinnutími hefðbundins vaktavinnufólks hafi styst um 17 prósent og lækna um 12 prósent.
Breytingarnar hafi því veruleg áhrif á mönnunarþörf spítalans, enda sé takmarkað svigrúm til að draga úr viðveru starfsfólks án þess að það komi niður á þjónustu.