Fósturfaðir sem sakaður er um ítrekuð kynferðisbrot gegn fósturbarni sínu hefur krafist þess að aldur stúlkunnar verði metinn af fagmönnum, en hann telur stúlkuna vera eldri en fram kemur í opinberum gögnum.
Sakaður um ítrekuð brot
Samkvæmt ákæru, sem gefin var út þann 16. júlí sl., er manninum gert að sök stórfellt brot í nánu sambandi, nauðgun og kynferðisbrot gegn barni með því að hafa í fjölda skipta á tímabilinu apríl til 8. maí haft samræði og önnur kynferðismök við stúlkuna, án samþykkis og með ólögmætri nauðung. Meint brot áttu sér stað á sameiginlegu heimili þeirra og er maðurinn sagður hafa nýtt sér yfirburði sína og aldursmun og notfært sér að stúlkan gat hvorki spornað við verknaðinum né skilið þýðingu hans vegna aldurs og eftir atvikum svefndrunga vegna áhrifa lyfja sem maðurinn gaf henni.
Ákæran miðar við að stúlkan sé yngri en 15 ára en maðurinn telur hana vera eldri og hefur því krafist þess að dómkvöddum matsmönnum verði falið að meta líffræðilegan aldur og líkamlegan beina- og kynþroska stúlkunnar á þeim tíma sem ætluð kynferðisbrot áttu sér stað.
Lofaði að greiða 3 milljónir fyrir málamyndahjónaband
Fram kemur í úrskurði Landsréttar að stúlkan sé af erlendum uppruna. Faðir hennar kom til Íslands árið 2021 og stúlkan kom um ári síðar á grundvelli fjölskyldusameiningar. Árið 2024 þurfti að fjarlægja hana af heimili föður vegna andlegra veikinda hans og eftir það var stúlkan á miklu flakki. Hún fór fyrst til föðurömmu erlendis en kom svo aftur til Íslands og fór þá á fósturheimili þar sem hún dvaldi í nokkra mánuði en neitaði svo að snúa til baka. Þannig endaði hún hjá eiginkonu ákærða í málinu, sem er vinkona föður hennar. Fram kemur að ákærði og vinkonan hafi gengið í hjúskap í nóvember 2025, en ákærði mun hafa komið til Íslands í október sama ár.
Ætluð kynferðisbrot hófust þegar stúlkan hafði dvalið á heimilinu í um fimm mánuði. Fósturfaðirinn hefur viðurkennt í yfirheyrslu að hjónaband hans hafi verið til málamynda svo hann kæmist til Íslands. Eiginkonan samþykkti að giftast honum ef hann greiddi henni þrjár milljónir. Hann bjó á heimili konu sinnar og var þar með sérherbergi. Mun hann hafa skutlað stúlkunni í skólann.
Fannst grunsamlegt að stúlkan væri sögð bráðþroska
Aldur stúlkunnar er ekki gefinn upp í úrskurðinum en ákært er fyrir ákvæði hegningarlaga sem varðar börn yngri en 15 ára. Eins hefur RÚV fjallað um málið en þar kemur fram að stúlkan sé 12 ára gömul og að brotin hafi átt sér stað á Suðurnesjum. Samkvæmt fréttum munu ákærði og eiginkona hans hafa verið með nokkur börn í fóstri.
Fram kemur í skýrslu um réttarlæknisfræðilega skoðun á stúlkunni að hún sé þroskuð í útliti og mætti ráða að hún væri bráðþroska.
Ákærði telur að stúlkan sé eldri en skráður lögaldur gefur til kynna. Hefur hann það eftir stúlkunni sjálfri sem og af mati læknis sem taldi hana bráðþroska. Eins sé fæðingarvottorð hennar gefið út á stofnun sem hafi glímt við „viðurkennt, kerfisbundið vandamál er varðar spillingu, óáreiðanleika og ranga skráningu skilríkja“.
Samkvæmt stjórnarskrá eigi hann rétt til réttlátrar málsmeðferðar og því hafi aldursgreining á stúlkunni verulega þýðingu fyrir réttindi hans.
Héraðsdómur féllst á kröfu mannsins en það gerði Landsréttur ekki. Landsréttur vísaði til þess að engin haldbær gögn væru fyrir hendi sem gæfu til kynna að fæðingarvottorð eða önnur gögn um aldur stúlkunnar væru fölsuð eða efnislega röng. Það dugi ekki til að læknir hafi metið stúlkuna bráðþroska. Aldursgreining feli í sér líkamlegt inngrip gagnvart brotaþola og þar með gagnvart friðhelgi hennar. Var úrskurður héraðsdóms því felldur úr gildi.