Fréttir

Dudus barði Diddy í fangelsinu – Á sjúkrahús með höfuðáverka

Mynd
Dudus var reiður við Diddy eftir sjónvarpsþátt NBC. Myndir/Wikipedia/Getty

Eiturlyfjabarón sem er kallaður Dudus veitti  Diddy alvarlega höfuðáverka í slagsmálum í fangelsi í New Jersey. Var hann reiður reiður rapparanum vegna sjónvarpsþáttar um fangelsisvistina.

Miðillinn TMZ greinir frá þessu.

Rapparinn Diddy, eða Sean Combs sem afplánar rúmlega fjögurra ára dóm fyrir að taka þátt í vændisstarfsemi, var fluttur á spítala á föstudag með alvarlega höfuðáverka. Var það eftir slagsmál við samfanga og var Diddy augljóslega sá sem varð undir í þeirri rimmu.

Sá sem veitti Diddy höfuðáverkana var eiturlyfjabarón frá eyjunni Jamaíku sem heitir Christopher Coke en er kallaður Dudus. Var Dudus reiður við Diddy fyrir að hafa komið upp um lystisemdir þeirra í fangelsinu í Ford Dix í New Jersey. Fleiri fangar eru sagðir reiðir við Diddy.

Nudd, áfengi og þrif

Í sjónvarpsþætti á NBC var greint frá lystisemdunum sem Diddy býr við í fangelsinu. Hann er með kokk, fær nudd, farsíma, áfengi og þrif. Borgar hann öðrum föngum veglega fyrir þetta, annað hvort í peningum eða fíkniefnum.

Sjá einnig:

Fyrsta myndin af Diddy í fangelsi

Eftir að þátturinn var sýndur brugðust fangelsisyfirvöld við og gerðu meðal annars farsíma upptæka. Þar á meðal símann hans Dudus, sem er að afplána 23 ára fangelsisdóm síðan árið 2012, fyrir víðtækt smygl á maríjúana og kókaíni til Bandaríkjanna. Dudus er stórlax í fangelsinu og var ekki sáttur við að missa fríðindi sín.

Bæði Diddy og Dudus hafa verið settir í tveggja vikna einangrun vegna slagsmálanna. Diddy var þegar í einangrun þegar Dudus réðist á hann, en í daglegri pásu.