Fréttir

Dæmdur fyrir að flytja inn lítt þekkt efni sem hann taldi vera löglegt

Mynd
Héraðsdómur Vesturlands. Skjáskot af ja.is

Héraðsdómur Vesturlands hefur sakfellt mann fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni. Flutti maðurinn efni til landsins sem er líklega ekki mikið þekkt hérlendis. Flutti hann efnið inn frá Tékklandi, þaðan sem hann er, og að hans sögn til eigin nota. Sagði maðurinn að efnið væri löglegt þar í landi og hafi hann talið að það ætti einnig við hérlendis en svo reyndist ekki vera.

Var maðurinn ákærður vegna innflutnings á um tveimur kílóum af efninu kratom. Efnið flutti maðurinn til landsins með pakkasendingu sem tollgæslan lagði hald á.

Kratom er unnið úr plöntunni mitragyna speciosa sem fyrirfinnst í nokkrum Asíulöndum en einnig Papúa Nýju-Gíneu. Efnið er sagt örvandi og hefur verið víða selt sem verkjalyf og notað í meðferð við ópíóðafíkn, m.a. í Bandaríkjunum en það er þó ansi misjafnt eftir ríkjum þar í landi hvort efnið er bannað, hvort það er leyft með ákveðnum skilyrðum eða hvort engar reglur gilda um efnið yfirhöfuð.

Kratom er ólöglegt á Íslandi en eftir því sem DV kemst næst er efnið lyfseðilsskylt á hinum Norðurlöndunum. Það er síðan afar misjafnt í öðrum Evrópuríkjum hvort efnið er bannað, leyft eða leyft innan ákveðinna marka.

Deildar meiningar virðast vera um hversu heilsusamleg notkun kratoms er.

Í glænýrri grein frá einu virtasta læknisfræðasetri heims, The Mayo Clinic í Bandaríkjunum, kemur fram að rannsóknir hafi sýnt fram á margvíslegar skaðlegar aukaverkanir af notkun kratoms og einnig hafi það reynst ávanabindandi. Er í greininni mælt með því að kratom sé ekki notað í læknisfræðilegum tilgangi.

Vara við

Í febrúar á þessu ári bárust fréttir af því að Lögreglan á Norðurlandi eystra hefði lagt hald á 60 kíló af kratomi. Varaði embættið við efninu og sagði það selt fólki ranglega sem fæðubótarefni eða náttúrulyf. Efnið gæti verið enn skaðlegra væri það notað með öðrum vímugjöfum.

Í þessu máli sem Héraðsdómur Vesturlands hefur nú dæmt í var sendingin stíluð á hinn ákærða en lagt var hald á hana í mars á síðasta ári.

Í skýrslutöku hjá lögreglu sagðist maðurinn nota Kratom í æfingaprógrami. Það virkaði eins og mjög sterkt kaffi og gæfi orku. Efnið væri löglegt í Tékklandi og væri selt þar í matvörubúðum. Eftir því sem DV kemst næst er kratom sannarlega löglegt þar í landi.

Maðurinn sagðist hafa pantað efnið frá Tékklandi og það hafi verið sent til Íslands í pósti. Flutningsaðili hafi haft samband við sig og spurt hvað þetta væri. Hann hafi svarað því hreinskilnislega. Fljótlega hafi flutningsaðilinn aftur haft samband og upplýst um þar sem að efnið væri skilgreint sem fíkniefni á Íslandi og væri þar með ólöglegt yrði það sent aftur til Tékklands, það hefði hann ekki haft hugmynd um. Svo fór hins vegar að efnið var ekki sent til baka heldur lagði tollgæslan hald á það. 

Hissa

Manninum var hins vegar ekki tilkynnt um það fyrr en hann var boðaður einhverjum vikum síðar í skýrslutöku hjá lögreglu. Sagðist hann hafa fram að því talið að kratomið hefði verið sent á heimilisfang hans í Tékklandi.

Sagði maðurinn fyrir dómi að grænt kratom væri efni sem bæti frammistöðu og einbeitingu og væri notað af fólki í líkamsrækt. Efnið hjálpaði honum þegar hann væri á næturvakt en einnig þegar hann færi í ræktina. Efnið væri blandað út í vatn og hægt væri að drekka það eins og heitt te eða kalt. Þetta væri sambærilegt við fæðubótarefni. Maðurinn sagðist ekki fara í vímu af efninu, það hefði ekki slík áhrif, heldur væri þetta svipað og að drekka kaffi, þ.e. yki orku, hann drykki þetta í staðinn fyrir
kaffi.

Ítrekaði hann fyrir dómi að hann hefði ekki haft hugmynd um að kratom sé ólöglegt á Íslandi.

Bannað

Fyrir dóminn komu vitni frá lögreglu og Rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja-og eiturefnafræði sem staðfestu um hvers konar efni var að ræða.

Maðurinn játaði að hafa flutt kratomið til landsins en krafðist sýknu á þeim grundvelli að hann hefði haft réttmæta ástæðu til að ætla að hann væri ekki að gera neitt ólöglegt.

Héraðsdómur Vesturlands segir hins vegar í sinni niðurstöðu að ljóst sé að kratom sé á lista yfir ólögleg fíkniefni á Íslandi og nokkrir refsidómir hafi verið kveðnir upp vegna innflutnings á efninu. Almennt leysi lögvilla geranda ekki undan refsiábyrgð en geti vissulega haft áhrif við ákvörðun viðurlaga við broti. Sé þannig gengið út frá því að almennir borgarar skuli þekkja
gildandi lög og reglur og það tjói ekki að bera því við eftir refsivert brot að viðkomandi hafi ekki vitað að háttsemi hans væri honum óheimil eða hann misskilið eða mistúlkað reglu. Fyrir liggi að umrætt efni sé hugbreytandi og áhrif af neyslu þess virðist talsvert önnur og meiri en af því að drekka kaffi eins og maðurinn vísaði til.

Dómurinn segir engu máli skipta hvaða reglur gildi um kratom í Tékklandi. Er einnig vísað til þess að fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni sé heimilt að refsa hvort sem brot sé framið af ásetningi eða gáleysi.

Við ákvörðun refsingar er litið til þess að maðurinn játaði háttsemi sína þótt hann hefði talið hana vera refsilausa.

Í ljósi þess, magns kratomsins og dómafordæma þótti við hæfi að dæma manninn í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi.