Fréttir

Tapaði 700 þúsund krónum þegar taskan hennar hvarf úr bílnum

Mynd
Landsréttur. Mynd: DV/KSJ

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um framlengingu gæsluvarðhalds yfir síbrotamanni til mánudagsins 2. nóvember. 

Málið hófst þann 5. september síðastliðinn þegar kona tilkynnti þjófnað úr bílnum sínum sem hún hafði lagt á ónefndum stað í Reykjavík, farið inn í hús og dvalist þar í um fimm mínútur. Þegar hún kom aftur út í bílinn var taskan hennar horfin horfin ásamt öllu sem í henni var, þ. á m. demantskrossi, gullarmbandi og kortaveski með kortum. Var áætlað verðmæti um 700.000 krónur. 

Við rannsókn málsins kom í ljós að greiðslukort konunnar var notað í verslun á Laugavegi stuttu eftir atvikið. Við skoðun á myndbandsupptökum úr versluninni bar lögregla kennsl á síbrotamann sem var að nota kortið. Var hann handtekinn 9. september.

Maðurinn er grunaður um 55 afbrot á rúmlega tveggja ára tímabili og hefur verið gefin út ákæra á hendur honum í 32 liðum, sem nær þó alls ekki yfir allt brotatímabilið. „Með vísan til fjölda og eðlis brotanna er fallist á það með sóknaraðila að hætta sé á að varnaraðili haldi áfram brotum verði hann látinn ganga laus,“ segir í rökstuðningi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir áframhaldandi gæsluvarðhaldi, sem bæði héraðsdómur og Landsréttur hafa fallist á. 

Úrskurðinn má lesa hér.