Fréttir

Slasaði sig á dularfullri saumnál í bílaleigubílnum en fær ekki endurgreitt

Mynd
Mynd af bíl/Pixabay - Myndin er samsett.

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur hafnað kröfu ferðamanns um endurgreiðslu á leigu fyrir bílaleigubíl og greiðslu skaðabóta vegna meiðsla sem hann varð fyrir af völdum saumnálar í bílnum. Ekki tókst að upplýsa hvernig stóð á því að saumnálin var í bílnum en bílaleigan sagðist ekkert kannast við nálina.

Ferðamaðurinn var með bílinn á leigu í um viku. Hann krafðist endurgreiðslu leiguverðs að fjárhæð 69.352 krónur, greiðslu útlagðs lækniskostnaðar og 300.000 króna í miskabætur. Þá krafðist hann formlegrar afsökunarbeiðni frá bílaleigunni.

Sagðist ferðamaðurinn hafa orðið fyrir alvarlegum meiðslum af völdum saumnálar sem falin hafi verið í bílnum. Nálin hafi verið undir armpúðanum milli framsætanna, beint fyrir aftan handbremsu bifreiðarinnar. Þegar hann hafi dregið handbremsuna upp hafi nálin stungist í lófa hans með þeim afleiðingum að það blæddi úr lófanum og hann fundið fyrir miklum sársauka. Nálin hafi ekki verið sýnileg og því hafi stafað af henni dulin hætta.

Ferðamaðurinn leitaði til læknis hérlendis strax í kjölfarið og lagði fram gögn því til staðfestingar. Tekið var sýni til skimunar fyrir smitsjúkdómum og honum ráðlagt að endurtaka sýnatöku eftir þrjá mánuði og mögulega aftur eftir sex mánuði. Þar sem um saumnál var að ræða var smithætta talin ólíkleg og því ekki talin þörf á fyrirbyggjandi meðferð. Röntgenmynd sýndi enga aðskotahluti í sárinu og ekki var talin þörf á frekari rannsóknum eða meðferð. Síðar fór ferðamaðurinn í frekari læknisskoðanir erlendis vegna mögulegrar smithættu. Samkvæmt framlögðum gögnum hafa niðurstöður rannsókna vegna mögulegs smits verið neikvæðar.    

Ábyrgð

Taldi ferðamaðurinn að bílaleigan hafi ekki tryggt með fullnægjandi hætti að bíllinn væri öruggur til notkunar og bæri ábyrgð á því tjóni sem hann hafi orðið fyrir. Bílaleigan hafi ekki rannsakað með fullnægjandi hætti hvernig nálin komst í bifreiðina.

Bílaleigan vísaði allri ábyrgð á atvikinu frá sér. Ekkert lægi fyrir um hvernig nálin hafi komist í bifreiðina og engir sambærilegir hlutir væri notaðir í starfsemi bílaleigunnar eða við viðhald og yfirferð á bílum í hennar eigu. Eftirgrennslan hafi jafnframt ekki leitt í ljós neinar vísbendingar um uppruna nálarinnar. Þá taldi bílaleigan gögn málsins ekki sýna fram á að rekja mætti meiðsli ferðamannsins til háttsemi eða vanrækslu hennar. Læknisfræðileg gögn bæru heldur ekki með sér að um alvarleg eða varanleg meiðsli hafi verið að ræða. 

Ósannað

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa segir í sinni niðurstöðu að fyrirliggjandi gögn styðji að nálin hafi verið í bílnum þegar atvikið átti sér stað. Hins vegar liggi ekki fyrir hvernig eða hvenær nálin komst í bílinn. Þá hafi heldur ekki verið sýnt fram á að bílaleigunni hafi verið kunnugt um tilvist nálarinnar áður en bíllinn var afhentur ferðamanninum eða að við fyrri þrif og yfirferð bifreiðarinnar hafi komið fram nokkuð sem gefið hafi tilefni til að ætla að slíkur aðskotahlutur væri falinn undir armpúðanum.

Nefndin segir að samkvæmt gögnum málsins séu bílar bílaleigunnar þrifnir og yfirfarnir eftir hverja útleigu. Þótt fyrirtækinu beri að gæta þess að bifreiðar sem leigðar eru út séu í góðu og öruggu ástandi verði sú skylda ekki talin fela í sér ábyrgð á sérhverjum aðskotahlut sem kunni að finnast í bílum fyrirtækisins. Til þess að skaðabótaábyrgð verði lögð á verði að vera sýnt fram á að tjónið verði rakið til saknæmrar háttsemi eða vanrækslu af hálfu bílaleigunnar.

Nefndin telur að ekki hafi tekist að sýna fram að tilvist nálarinnar verði rakin til afhafna eða athafnaleysis, svo sem vanrækslu við þrif eða eftirlit. Þótt fyrirliggjandi gögn styðji að ferðamaðurinn hafi orðið fyrir stunguáverka hafi ekki verið sýnt fram á saknæma háttsemi eða vanrækslu af hálfu bílaleigunnar. 

Kröfu ferðamannsins um skaðabætur og endurgreiðslu er því hafnað en hvað varðar kröfu hans um afsökunarbeiðni þá segir nefndin að hún hafi ekki lagaheimild til að skylda bílaleiguna til þess að biðjast afsökunar. Þá kröfu sé því ekki hægt að taka til úrlausnar.