Fréttir

Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“

Mynd
Kristín I. Pálsdóttir, framkvæmdastýra og talskona Rótarinnar.

Sjúkratryggingar Íslands hafa ekki afhent Rótinni aðgang að samningi sínum við SÁÁ líkt og stofnunin átti að gera samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Líkt og DV fjallaði um í lok september var slegið á putta Sjúkratrygginga þar sem stofnunin hafi ekki afgreitt beiðni Rótarinnar innan sjö daga frá móttöku. „Sjúkratryggingum Íslands er bent á að gæta framvegis að þessu atriði,“ segir í niðurstöðunni.

Sjá einnig: Rótin á að fá allan samning Sjúkratrygginga við SÁÁ

Málið snýst um samning sem Sjúkratryggingar gerðu við SÁÁ í desember í fyrra. Kristín I. Pálsdóttir, framkvæmdastýra Rótarinnar, segir í samtali við DV að ástæðan fyrir því að samtökin vilji fá þessar upplýsingar sé til að vita hvernig meðferðarkerfi sé starfandi á Íslandi og hvernig verið sé að nýta fjármuni. 

Rótin hafði samband við Sjúkratryggingar í febrúar um að fá að sjá samninginn, eftir ítrekanir og svarleysi var svarleysið kært til úrskurðarnefndar sem leiddi til þess að samningurinn var afhentur í apríl en með ýmsum upplýsingum afmáðum, Rótin kærði það aftur til úrskurðarnefndarinnar. Úrskurðarnefndin hafnaði andsvörum Sjúkratrygginga um að afmáðu upplýsingarnar væru efnahagslega mikilvægir hagsmunir íslenska ríkisins eða hefðu skaðleg áhrif á samkeppni. Samkvæmt 24. grein upplýsingalaga hafði stofnunin sjö daga, eða fram í síðustu viku, til að krefjast frestun réttaráhrifa. 

Kristín segir að nú þegar liðnar eru tvær vikur frá úrskurðinum þá hafi ekkert svar borist frá Sjúkratryggingum. 

„Þetta er mjög furðulegt. Upphæðin til SÁÁ er á fjárlögum. Ég veit ekki hvers vegna það er svona mikið leyndarmál hvað það eiga að vera margir hjúkrunarfræðingar og sálfræðingar að störfum,“ segir Kristín. „Það væri gaman að fá útskýringar frá Sjúkratryggingum á því hvað er svona leynilegt.“ 

Úrskurðarnefndin hefur nú gefið stofnuninni frest fram á mánudag. Sjúkratryggingar hafa ekki svarað fyrirspurn DV vegna málsins.