„Ég og maðurinn minn erum 1 af 6. Við erum eitt af þeim pörum sem vita manna best að barneignir eru ekki sjálfgefnir lífsviðburðir heldur ferli sem inniheldur blóð, svita og tár (og tóman bankareikning),“
segir Sigríður Eva Þorsteinsdóttir stjórnarmeðlimur Tilveru, samtaka um ófrjósemi.
Í grein sinni segir Sigríður einstaklinga fá misjöfn spil lífinu og það sé eftir einstaklingnum sjálfum komið hvernig hann spili úr þeim. „Þau geta veitt okkur mikla gleði og trompað lífið en á sama tíma getum við dregið spil sem við höfum engan áhuga á að hafa á hendi. Ófrjósemi er eitt af þeim spilum sem 1 af hverjum 6 pörum fá í lífinu og það eru spil sem enginn vill hafa á hendi. Þegar fólk fær slík spil í hendurnar er líklegt að framundan sé löng og erfið vegferð framundan.“
Sigríður segir að þá einstaklinga sem hafa þurft aðstoð til þess að eignast börn vita að væntingar eru miklar og vonin alltaf til staðar í þessu ferli. „Að vona er gott en það sem vonin gerir er að hún oftar en ekki yfirtekur allar hugsanir. Vonin sem lætur mann ímynda sér jákvætt óléttupróf, settan dag, nöfn og framtíðina sem eintóma gleði. Þegar svo kemur að skuldadögum og ein lína birtist í stað tveggja á óléttuprófi hverfa allir draumar og sorgin tekur við. Sorgin og reiðin. Ekki bara yfir neikvæðu prófi heldur yfir því að hafa leyft huganum að fara of langt í framtíðina. Yfir því að hafa haldið það fast í vonina, byrja að skoða mikilvægar dagsetningar, barnarúm og skreppa eina ferð í Barnaloppuna. Keyptar barnavörur verða svo settar í kassa þangað til þær verða vonandi einn daginn nýttar.“
Sigríður bendir á að hérlendis þurfi einstaklingar og pör sem glíma við ófrjósemi að borga mun meira úr vasa en nágrannar okkar á Norðurlöndunum. Tekur hún sem dæmi að í Danmörku fær fólk fyrstu sex glasameðferðir fríar á meðan hver meðferð hér heima kosti með einhverri niðurgreiðslu frá Sjúkratryggingum 630.000 krónur. Segir hún þá niðurgreiðslu einungis dropi í hafið fyrir marga, en uppsetningar á frystum fósturvísum eru til dæmis ekki niðurgreiddar. Einnig er vert að nefna alls kyns önnur gjöld eins og lyfjakostnað, geymslugjöld og fleira.
Vitundarvakning Tilveru, samtök um ófrjósemi fer fram í nóvember og segir Sigríður fáa vita af samtökunum, en þau sinni mikilvægum störfum til stuðnings þeirra sem glíma við ófrjósemi. „Ófrjósemi er einmanalegur sjúkdómur en Tilvera reynir að hlúa að meðlimum sínum með stuðningskvöldum og með því að berjast fyrir réttindum þeirra.“
„Að halda áfram er erfitt en með vonina um barn í fangi heldur maður áfram. Þangað til að bankareikningurinn segir stopp. Það er ekki ódýrt að reyna að eignast barn. Kostnaðurinn er misjafn en reynir alltaf mikið á heimilisbókhaldið. Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða og þurft að taka hlé til þess að safna fyrir framhaldinu. Styrkir eru lágir og fáir, einungis dropar í hafið. Við höfum ekki tekið saman nákvæmar tölur um eyðslu okkar í ófrjósemis-heiminum, en sú tala myndi ég giska að væru upp á milljónir. Peningur sem hefði getað farið inn á húsnæðislánið, framkvæmdir eða í utanlandsferðir.“
Grein Sigríðar má lesa hér.