Veður tók að versna í nótt þegar óvenjudjúp lægð nálgaðist landið úr suðri með stormi, roki og mikilli úrkomu. Eins og kunnugt er hefur Veðurstofa Íslands gefið út gular og appelsínugular viðvaranir og varar við afar slæmu ferðaveðri.
Að sögn veðurfræðings er mögulegt að 63 ára gamalt loftþrýstingsmet fyrir októbermánuð falli í dag. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands í morgun.
Lægðin nálgast landið hratt úr suðri og hefur loftþrýstingur fallið verulega í nótt. Skil hennar ganga nú yfir sunnanvert landið með austanstormi eða roki og talsverðri eða mikilli úrkomu.
Hvassast verður syðst á landinu í morgunsárið, einkum undir Eyjafjöllum og í Mýrdalnum. Klukkan sex í morgun mældist vindhraði 37,2 metrar á sekúndu á Stórhöfða og 25,2 metrar á sekúndu á Vatnsgarðshólum.
Á Suðurlandi er appelsínugul viðvörun í gildi til klukkan tíu. Þar er spáð 18–28 metrum á sekúndu og vindhviðum sem geta farið yfir 40 metra á sekúndu. Veðurstofan segir ekkert ferðaveður á svæðinu.
Athygli vekur hversu djúp lægðin er. Samkvæmt nýjustu spám gæti loftþrýstingur í miðju hennar farið niður í 930 millibör um hádegisbil, þegar lægðin verður skammt sunnan við Vestmannaeyjar.
Til samanburðar er lægsti loftþrýstingur sem mælst hefur hér á landi í október 938,4 millibör, en það met var sett 19. október árið 1963.
„Lægsti þrýstingur dagsins í dag gæti því hæglega slegið það met ef spár ganga eftir!“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.
Síðdegis færist miðja lægðarinnar inn yfir landið og þá tekur smám saman að draga úr vindi og úrkomu sunnan- og austanlands.
Á sama tíma versnar veðrið verulega norðvestanlands þar sem gengur í norðan stórhríð. Appelsínugular viðvaranir taka gildi á Breiðafirði klukkan 11, á Vestfjörðum klukkan 17 og á Ströndum og Norðurlandi vestra klukkan 21.
Á þessum svæðum er spáð allt að 28 metrum á sekúndu, mikilli snjókomu eða slyddu og afar takmörkuðu skyggni. Veðurstofan varar við snjóþekju á vegum og segir ekkert ferðaveður meðan veðrið verður verst.
Einnig er möguleiki á eldingum í tengslum við skil lægðarinnar.
Í kvöld og nótt færist óveðrið austur eftir Norðurlandi og yfir á Austurland. Þar er búist við hríð fram á fimmtudagsmorgun.
Á Austfjörðum og Suðausturlandi eru jafnframt gular viðvaranir vegna mikillar rigningar sem getur valdið vexti í ám og lækjum og komið af stað skriðuföllum.
Samkvæmt Veðurstofunni ætti lægðin að vera gengin hjá síðdegis á fimmtudag. Þá verður veður orðið skaplegra um landið, en nokkuð kalt.