Fréttir

Ölgerðin svarar fyrir sig eftir umfjöllun Kveiks í gærkvöldi

Mynd

Jón Þorsteinn Oddleifsson, forstjóri Beru, móðurfélags Ölgerðarinnar, segir að komi í ljós að eitthvað í framgöngu fyrirtækisins á markaðnum standist ekki skoðun muni fyrirtækið taka það til endurskoðunar.

Fjallað var um málið í fréttaskýringaþættinum Kveik á RÚV í gærkvöldi. Þar stigu fram forsvarsmenn handverksbrugghúsa og smærri innflutningsaðila og sökuðu Ölgerðina um að misnota markaðsráðandi stöðu, bæði hvað varðar sölu áfengra drykkja og óáfengra.

Gerðir séu samningar við bari, útihátíðir, nemendafélög og fleiri aðila til að útiloka aðra en Ölgerðina. Þá hafi Ölgerðin mun greiðari aðgang að verslunum og meira að segja ÁTVR en aðrir. Eins og greint var frá fyrir helgi gerði Samkeppniseftirlitið húsleit hjá Ölgerðinni vegna ætlaðra brota á 11. grein samkeppnislaga sem bannar misnotkun á markaðsráðandi stöðu.

Sjá einnig: Saka Ölgerðina um að misnota markaðsráðandi stöðu - „Þú keppir ekkert við þetta“

Í yfirlýsingu sem Jón Þorsteinn leggur nafn sitt við og send var út á tólfta tímanum í gærkvöldi kemur fram að umsvif Ölgerðarinnar hafi aukist mikið á síðustu árum.

„Félagið keppir í flestöllum drykkjarvöruflokkum og er stærsti aðilinn í einhverjum þeirra. Þetta er breyting frá því sem áður var líkt og kom fram í þættinum og teljist félagið markaðsráðandi þá leggja samkeppnislög auknar skyldur á það umfram aðra á markaði.“

Að sögn Jóns Þorsteins var fjallað um viðskiptahætti sem hafa viðgengist lengi á markaðnum í tengslum við styrktarsamninga við nemendafélög í háskóla. Ölgerðin muni taka þessa samninga til skoðunar.

„Ölgerðin mun vinna áfram með Samkeppniseftirlitinu að því að upplýsa þau atriði sem eftirlitið er með til skoðunar og fjallað var um í þættinum. Félagið telur sig starfa á mjög virkum samkeppnismarkaði og virkt eftirlit samkeppnisyfirvalda er mikilvægur þáttur í að stuðla að heilbrigðri samkeppni.“

Þá segir að endingu að komi í ljós að eitthvað í framgöngu Ölgerðarinnar á markaðnum standist ekki skoðun þá verði það tekið til endurskoðunar.