Réttrúnaðarkirkjan segir raunverulega hættu vera á því að söfnuðurinn standi uppi án staðar til bænahalds þar sem leigusamningur um núverandi húsnæði rennur brátt út. Hluti safnaðarins, sem hafi farið mjög stækkandi, þurfi að standa úti við bænahald á sunnudögum vegna þrengsla.
Þetta og fleira kemur fram í nýrri yfirlýsingu sem söfnuðurinn sendi DV í tilefni af fréttum þess efnis að ákvörðun borgarráðs um afturköllun lóðar safnaðarins til byggingar kirkju á Mýrargötu 21-23 væri endanleg.
Borgarráð samþykkti í síðustu viku að afturkalla úthlutun lóðar til safnaðarins árið 2008, sem og úthlutun lóðar til Félags múslima á Íslandi, þar sem of langur tími væri liðinn frá úthlutunum án þess að byggt hefði verið á lóðunum. Réttrúnaðarkirkjan hefur lýst því yfir að allt sé klárt til að hefja byggingarframkvæmdir á lóðinni. Í nýrri yfirlýsingu segir að nú þegar hafi 55 milljónir króna verið lagðar í verkefnið, fé sem komi frá frjálsum framlögum. Formaður borgarráðs, Einar Þorsteinsson, sagði í viðtali við mbl.is á mánudag að ákvörðunin væri endanleg og ekkert í svörum Rétttrúnaðarkirkjunnar til borgarráðs hafi réttlætt að borgin hyrfi frá þeirri ákvörðun að afturkalla úthlutunina.
„Dyr okkar standa opnar“
Rétttrúnaðarkirkjan segir hins vegar í nýrri yfirlýsingu að óskað hafi verið eftir fundi með fulltrúum borgarinnar en af slíkum fundi hefði ekki orðið ennþá. Endurtaka þau boð sitt um fund. Yfirlýsingin er eftirfarandi:
„Rétttrúnaðarsöfnuður okkar er hluti af íslensku samfélagi. Safnaðarmeðlimir búa hér, starfa hér, greiða hér skatta og ala hér upp börn sín. Mörg þessara barna eru fædd á Íslandi og hafa aldrei þekkt annað heimili. Ísland er heimili okkar allra.
Rétttrúnaður er ekki framandi í sögu Íslands. Fyrstu kristnu mennirnir á þessari eyju voru rétttrúnaðarmunkar sem bjuggu hér áður en kirkjan klofnaði í austur- og vesturkirkju. Heilagur Nikulás, verndari sjómanna og ferðalanga, var einn ástsælasti dýrlingur Íslands á miðöldum og fram að siðaskiptum var meirihluti íslenskra kirkna helgaður honum. Þess vegna höfum við ákveðið að helga kirkju okkar einnig heilögum Nikulási, sem brú milli fornrar kristinnar arfleifðar Íslands og safnaðar okkar í dag.
Af sömu ástæðu var kirkjan hönnuð sérstaklega fyrir Ísland, í norrænum og býsönskum stíl sem sameinar þessar tvær hefðir. Nú þegar hafa 55 milljónir króna verið lagðar í verkefnið. Allt þetta fé kemur eingöngu frá frjálsum framlögum og hefur runnið til íslensks atvinnulífs, til íslenskra sérfræðinga og fyrirtækja.
Við erum trúfélag, ekki fyrirtæki. Öll þjónusta í kirkju okkar er endurgjaldslaus, þar á meðal skírnir, útfarir og öll önnur sakramenti og athafnir. Við tökum ekki gjald fyrir bænir og við seljum ekki náð. Við fylgjum orðum Krists til postula sinna í Matteusarguðspjalli (10:8): „Gefins hafið þér fengið, gefins skuluð þér láta í té.“
Söfnuður okkar fer stækkandi. Á sama tíma og trúarlíf á Íslandi tekur breytingum fjölgar rétttrúnaðarfólki ár frá ári. Í sunnudagsmessur okkar kemur saman fólk af fleiri en 15 þjóðernum. Guðspjallið er lesið á tungumálum allra viðstaddra og Faðir vorið biðjum við saman á íslensku. Einmitt þess vegna þurfum við nýja kirkju.
Í dag komum við saman í einkahúsi við Öldugötu 44, húsi sem er löngu orðið of lítið. Á hverjum sunnudegi þarf hluti safnaðarins að standa úti, hvernig sem viðrar. Leigusamningurinn um húsnæðið rennur brátt út og raunveruleg hætta er á að söfnuðurinn standi uppi án staðar til bænahalds.
Við virðum íslensk lög og rétt borgaryfirvalda til að taka ákvarðanir innan síns valdsviðs. Við förum ekki fram á sérréttindi eða undanþágur. Við óskum eftir sanngjarnri málsmeðferð þar sem tekið er tillit til sérstakra aðstæðna í okkar máli, og eftir tækifæri til að koma sjónarmiðum okkar á framfæri.
Við höfum óskað eftir fundi með fulltrúum Reykjavíkurborgar, en slíkur fundur hefur enn ekki átt sér stað. Því bjóðum við borgaryfirvöldum enn á ný, af opnu hjarta, til samtals. Dyr okkar standa opnar alla sunnudaga frá kl. 10. Þetta er vegferð sem getur aldrei tekið enda. Við göngum veg trúar, vonar og kærleika, sem er vegur sannleikans. Það eina sem við biðjum um er staður þar sem við getum iðkað trú okkar og beðið fyrir friði í heiminum og fyrir öllum mönnum.“