Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur hafnað kröfu einstaklings sem gekkst undir varafyllingar um endurgreiðslu og skaðabætur. Hélt umræddur einstaklingur því fram að varafyllingarnar hefðu orsakað útbrot í andliti hans. Nefndin taldi það hins vegar ósannað þrátt fyrir að útbrotin hafi birst daginn eftir að varafyllingarnar hefðu verið settar í.
Kvartandinn krafðist endurgreiðslu, alls 39.000 krónur, frá þeim aðila sem veitti þjónustuna auk endurgreiðslu læknis- og lyfjakostnaðar upp á 5.900 krónur og greiðslu 200.000 króna í miskabætur.
Í kvörtuninni kom fram að daginn eftir varafyllinguna hafi útbrot birst í andliti kvartandans, sem leitaði á heilbrigðisstofnun þar sem hann fékk ofnæmislyf. Í kvörtuninni var því haldið fram að varafyllingarnar hafi orsakað útbrotin og að læknir hafi staðfest að um ofnæmisviðbrögð væri að ræða. Þjónustuaðilinn hafi hins vegar haldið því fram að engar líkur væru á slíku og að varafyllingarnar væru alveg öruggar. Þá hefði þjónustuaðilinn gert lítið úr einkennunum, hvatt kvartandann til að leita ekki til læknis og sýnt af sér skaðlega vanrækslu á skyldum sínum. Vísaði jafnframt kvartandinn til vanrækslu á upplýsingaskyldu, óheiðarlegra viðskiptahátta og blekkjandi auglýsinga á vefsíðu þjónustuaðilans hvað varðaði hæfni hans.
Útbrotin gömul
Í andsvörum þjónustuaðilans var fullyrðingum kvartandans mótmælt. Allar upplýsingar um varafyllingarnar hafi verið veittar áður en meðferðin fór fram. Fullyrti þjónustuaðilinn að útbrot hafi verið sjáanleg á andliti kvartandans þegar hann mætti til að undirgangast varafyllingarnar. Vísaði sá fyrrnefndi til ljósmynda sem hann sagði teknar af andliti kvartandans áður en hann fékk varafyllingarnar. Taldi þjónustuaðilinn einnig í ljósi reynslunnar ólíklegt að efnið í varafyllingunum hefði valdið ofnæmisviðbrögðum, einnig hélt hann því fram að lýsingar kvartandans á einkennunum renndu ekki stoðum undir að útbrotin væru af völdum varafyllinganna. Þar að auki hefði kvartandinn ekki látið fjarlægja varafyllingarnar sem að mati þjónustuaðilans hefðu verið eðlileg viðbrögð hefðu þær orsakað útbrot.
Taldi þjónustuaðilinn því ósannað að kvartandinn hefði fengið útbrot vegna varafyllinganna. Ekkert læknisvottorð eða önnur gögn lægju fyrir um það og þar að auki hefði kvartandinn ekki veitt sér tækifæri til úrbóta þar sem hann hefði sent inn kvörtun til nefndarinnar sama dag og samskipti þeirra um meintar afleiðingar meðferðarinnar fóru fram. Af þeim sökum bæri að vísa málinu frá.
Krafðist þjónustuaðilinn einnig frávísunar á þeim forsendum að um heilbrigðisþjónustu væri að ræða og því félli málið ekki undir nefndina, samkvæmt lögum.
Engin endurgreiðsla
Í niðurstöðu kærunefndar vöru- og þjónustukaupa er ekki tekið undir með þjónustuaðilanum um að hann hafi verið að veita heilbrigðisþjónstu, enda hafa verið varafyllingarnar verið framkvæmdar í útlitsbreytandi tilgangi en ekki læknisfræðilegum.
Nefndin tekur hins vegar undir að kvartandinn hafi veitt þjónustuaðilanum lítið svigrúm til að leysa málið áður en sá fyrrnefndi sneri sér til nefndarinnar. Það hafi hann gert átta tímum eftir að hann gerði fyrst athugasemdir við þjónustuaðilann. Athugasemdum hafi þó verið komið á framfæri áður en kvörtunin var lögð fram og þar að auki hafi þjónustuaðilinn fengið fullt tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri við meðferð málsins hjá nefndinni. Því séu ekki forsendur til að vísa málinu frá á þessum grundvelli.
Nefndin segir að samkvæmt gögnum málsins hafi ekki verið lagt læknisfræðilegt mat á orsök útbrotanna í andliti kvartandans. Á ljósmyndum frá þjónustuaðilanum megi sjá að nokkrar húðbreytingar hafi verið til staðar fyrir meðferðina og á ljósmyndum sem teknar voru eftir hana megi sjá roða og útbrot. Það sé þó ekki hægt að ráða af ljósmyndunum hvort um sömu húðbreytingar hafi verið að ræða eða hvað hafi valdið þeim.
Sú staðreynd að kvartandinn fékk útbrot skömmu eftir meðferðina sýni fram á tímaleg tengsl en nægi ekki ein og sér til að staðfesta að útbrotin hafi verið afleiðing varafyllinganna. Hvorki ljósmyndirnar né önnur gögn málsins varpi nægilegu ljósi á orsök útbrotanna og engin læknisfræðileg gögn liggi fyrir sem staðfesti að um ofnæmisviðbrögð við fylliefninu hafi verið að ræða.
Nefndin telur einnig ósannað að þjónustuaðilinn hafi sýnt af sér vanrækslu, saknæma háttsemi eða ekki uppfyllt upplýsingaskyldur sínar. Það sé einnig ósannað að meðferðin hafi verið ófullnægjandi.
Kröfu kvartandans um endurgreiðslu og skaðabætur vegna hinna umdeildu varafyllinga er þar af leiðandi hafnað.