Maðurinn sem lést í rússíbanaslysinu í Georgíufylki í fyrradag var nýgenginn í samtök rússíbanaáhugafólks. Samfélagið er í molum og krefst aðgerða til að tryggja öryggi. Fjölskyldan vill að fólk hætti að deila ljósmynd af hinstu stund hans.
Maðurinn sem lést í rússíbanaslysinu í skemmtigarðinum Six Flags í Georgíufylki á mánudag hét Hassan Jihad Ibn Kariem, 42 ára upplýsingatæknistjóri og kennari frá Atlanta.
Mikill áhugamaður um rússíbana
Hassan þeyttist úr rússíbana, sem kallast Goliath, á mikilli ferð og féll til bana um 60 metra. Six Flags hefur lokað öllum 9 rússíbönum sínum á meðan rannsókn stendur. Ekki er langt síðan að rússíbananum X2 var lokað í garði Six Flags í Kaliforníu eftir að kom í ljós að hann hafði valdið tveimur dauðsföllum og fjölmörgum slysum vegna heilaskaða.
Í rannsókn lögreglunnar í Cobb sýslu hefur komið í ljós að líkami Hassan hafi skollið utan í aðra gesti þegar hann féll. Hann fannst fyrir neðan rússíbanann, meðvitundarlaus og andaði ekki.
Nú hefur komið í ljós að Hassan tilheyrði áhugamannafélagi um rússíbana, það er Roller Coaster Enthusiasts Club, síðan í mars á þessu ári.
Sjá einnig:
Einum hættulegasta rússíbana heims lokað – Olli heilaskemmdum og dauðsföllum
Samfélagið hefur brugðist við þessu sorglega dauðsfalli og kallað eftir auknu öryggi og eftirliti með rússíbönum.
Mynd í dreifingu
Fjölskylda Hassan hefur einnig brugðist opinberlega við fréttunum af andláti hans. Meðal annars hafa þau greint frá því að Hassan hafi verið haldinn miklum heilsubresti á undanförnum vikum, bæði krabbameini og covid. Einnig að hann og dóttir hans hefðu nýlega sloppið úr brennandi bíl.
Eins og í mörgum skemmtigarðstækjum náðist ljósmynd af Hassan í minjagripamyndavél. Hefur þessi mynd, sem sýnir hans hinstu stund, verið dreift á netinu og farið víða. Fjölskylda Hassan biðlar til fólks að dreifa ekki myndinni en tugmilljónir hafa séð hana á netinu.
Að sögn frænda Hassan, sem talar máli fjölskyldunnar, er verið að reyna að komast það því hver hefði komið myndinni í dreifingu. Bent er á að sonur Hassan sat við hliðina á honum í tækinu þegar slysið varð á meðan eiginkona hans og dóttir biðu fyrir neðan.
„Við erum algjörlega miður okkar út af þessum missi,“ sagði Elicia Day, vinkona fjölskyldunnar. „Að missa hann á þennan hátt, það fá engin orð því lýst.“