Fréttir

Máni segir Íslendinga ekki venjulegt fólk: „Það er hundrað prósent að einhver renni á rassgatið“

Mynd
Þorkell Máni Pétursson viðburðahaldari og fjölmiðlamaður.

„Íslendingar eru náttúrulega ekki venjulegt fólk, við skulum alveg hafa það á hreinu. Það eru hvergi miðað við höfðatölu fleiri 24 stunda matvöruverslanir neinsstaðar í heiminum en á Íslandi og þú þarft aldrei að keyra nema 2-3 kílómetra á næstu bensínstöð. Það er alltof mikið af öllu hérna. Það er alltof mikið opið hérna og það er alltof mikið af fótboltafélögum og alltof mikið af fótboltavöllum. Íslendingar láta alltaf, það eru 360 þúsund manns sem búa hérna, 400 þúsund, við leyfum að segja það. Það er of mikið af jólatónleikum og það er of mikið af öllu, það er bara mjög íslenskt,“ segir Þorkell Máni Pétursson viðburðahaldari og fjölmiðlamaður þegar hann var spurður hvort það væru of margir jólatónleikar á Íslandi. 

Jólatónleikar hafa fylgt þjóðinni í áraraðir. „Björgvin tók þetta upp í úrvalsdeild,“ segir Máni. Í ár má finna ýmsa jólatónleika, fyrir utan Sinfóníuna eru Komdu um jólin, Baggalútur, Iceguys, Vitringarnir, KK, Mugison og Jón Jónsson, Jülevenner Emmsjé Gauta, Margrét Eir, GDRN & Magnús Jóhann og fleiri. 

Hörð samkeppni

Í viðtali í Reykjavík síðdegis segir Máni að stór hluti jólatónleika gangi mjög vel. 

„Margt af þessu er mjög ólíkt og Íslendingar hafa búið til þá hefð að fara á tónleika um jólin. Íslendingar eru mjög duglegir að sækja tónleika og það er mjög gott. Það er ákveðið tækifæri í jólatónleikum, það segi ég sem faðir, að það er miklu meiri ástæða, börnin munu hætta að fara með þér í bíó, það er bara staðreynd, þau nenna frekar að fara með þér á tónleika. Ég fer með strákunum mínum á tónleika á hverju einasta ári, þeir nenna að vera með mér þegar við erum að fara á tónleika.“

Samkeppnin er hörð og það eru sumir sem fara halloka. „Það er alveg hundrað prósent þannig og þetta er ekkert allt að ganga upp. Það eru alveg margar ástæður fyrir því. Ég finn það núna á miðasölu á suma viðburði, það er líka þannig að það er minni peningur alls staðar og fólk er að kvarta yfir hlutunum. Í fyrsta skipti er ég að upplifa það að fólk er að kaupa ódýrari miðana áður en það kaupir dýru miðana.“ 

Kostaður og miðaverð of hátt

Máni segir að verðið sé orðið of hátt, bað hann þáttastjórnendur um að hleypa sér ekki í þá umræðu, hann fór þó aðeins í það. „Það er að kosta mig, áður en ég er búinn að borga einhverjum til að taka upp, án þess að ég sé búinn að borga heilli hljómsveit, án þess að ég sé búinn að borga einum einasta manni neitt, þá er ég búinn að borga 5.700 krónur á hvert einasta sæti í Hörpu. Þú getur reiknað það út á 1.500 manna sal. Þannig að kostnaðurinn þar er gígantískur, hann er alltof hár. Staðreynd málsins er sú, er ég nú búinn að reyna að fá eyru ráðamanna fyrir þessu máli, ódýrustu miðarnir eru að fara á undan dýrari miðunum sem hefur ekki verið lenskan,“ segir hann. Ef 5.700 er margfaldað með 1.500 þá gerir það 8.550.000.

„Svo er miðaverðið orðið svolítið hátt hjá okkur, ég segi fólki það strax og get sent því reiknisformúluna ef það vill það, það er ekki vegna þess að græðgi tónleikahaldara og listamanna er orðin svo mikið, það er vegna þess að á hverju einasta ári, án þess að kóngur né prestur sé spurður, þá kemur 10% hækkun á eitthvað hjá okkur. Svo erum við að díla við hús, Hörpuna, Laugardalshöllina, þá er ekki neitt til umræðu um að semja. Við erum ekki í neinni samningsstöðu, þeir sem eru í einkabransanum með þetta dæmi.“

Það mun því einhver verða undir í samkeppninni. „Það er hundrað prósent að einhver renni á rassgatið,“ segir Máni. 

24 prósent kostnaður á hvern einasta miða

Þá er kreppa þegar kemur að tónleikastöðum á Íslandi. Til dæmis sé Harpa ekki tónleikavænt hús.

„Það kemur út frá því að Harpan er að eiga við alls konar aðra hluti sem við vildum ekki að þeir væru að eiga við. Fasteignagjöld upp á 1,5 milljarð og alls konar svona vitleysa. Þetta er rándýrt og flott hús. Við þurfum sjálf að finna rekstrarmódel sem virkar,“ segir Máni. 

Þá er virðisaukaskattþrep á tónlist. „Sem er þannig að ég get ekki selt ykkur miða með virðisaukaskatti á en ég þarf hins vegar að borga virðisaukaskatt af öllu, leigunni af húsnæðinu, starfsfólkinu fyrir utan tónlistarmönnunum, kerfinu og öllu því. Það er kominn 24 prósent kostnaður og ég get ekki innskattað neitt af þessu. Ég get ekki komið með neitt á móti því miðarnir koma ekki inn með virðisaukaskatti. Þetta er 24 prósent aukakostnaður sem er lagður á hvern einasta miðakaupanda á Íslandi. Þetta er kjaftæði. Sorry en þetta er kjaftæði, það er hægt að breyta þessu með einu pennastriki en stjórnvöld hafa engan áhuga á því,“ segir Máni. 

Er hann ekki hrifinn af stjórnvöldum þegar kemur að þessu, vandar hann Lilju Alfreðsdóttur, formanni Framsóknarflokksins sem gengdi hlutverki mennta- og menningarmálaráðherra í síðustu ríkisstjórn, ekki kveðjurnar.

„Lilja Alfreðs hrósar sér mikið fyrir að hafa dælt peningum inn í tónlistarsenuna. En þessir peningar fóru ekki neitt. Þetta er mesta þvaður og bull sem ég hef séð á ævi minni þetta ferðalag. Hið opinbera vill bara koma listinni á sama stað og fjölmiðlum í landinu, bara í einhvern ruslflokk.“

Leiðrétting 20:30: Í fyrri útgáfu fréttarinnar voru Þorláksmessutónleikar Bubba Morthens taldir upp með jólatónleikum. Það er ekki rétt. Á Þorláksmessutónleikunum eru ekki spiluð jólalög heldur Bubbalög.