Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér tilkynningu þar sem foreldrar eru varaðir við VPN-stillingu, sem rúmlega 300 ungmenni nota til að falsa aldur sinn. Þessi stilling gerir ókunnugum kleift að lesa og breyta netumferð barnanna.
Lögreglan hefur nú til rannsóknar mál sem varðar sölu á fölsuðum rafrænum skilríkjum, en einn hefur verið handtekinn vegna málsins og er grunaður um að hafa selt hundruðum ólögráða ungmenna fölsuð skilríki. Þetta fer fram með þeim hætti að ungmenni kaupir aðgengi að vef eða að snjallsímaforriti fyrir iPhone.
Sambærilegt mál hefur áður komið upp en nú hefur bæst við sala á snjallsímaforriti sem ber með sér að vera island.is en er ekki hið eiginlega island.is. Þá er eins til sölu VPN-stilling (e. VPN profile) sem heitir „Island Surge VPN“ sem gerir það að verkum að kennitölu notandans er breytt á island.is og í netbönkum. Á farsímum þeirra sem sett hafa upp slíka VPN-stillingu fer öll vefumferð í gegnum vefþjóna þess sem seldi þjónustuna. Með slíka stillingu virka telur farsíminn að hann sé að eiga í öruggum samskiptum við banka eða island.is þrátt fyrir að milliliður sér kominn í spilið.
Í tilkynningu segir:
„Þar sem rannsóknargögn benda til þess að mörg hundruð ungmenni eigi hlut að máli mælist lögregla til þess að foreldrar/forráðamenn eigi samtal við börn sín um netöryggi sem og alvarleika þess að framvísa fölsuðum skilríkjum en slíkt fellur undir ákvæði hegningarlaga um skjalafals.
Þá vill lögregla beina því til allra söluaðila ávanabindandi efna, hvort heldur sem er áfengis eða nikótíns, bæði í verslunum og vínveitingastöðum, að sú leið að skoða eingöngu island.is vafrasíðu eða island.is snjallsímaforrit sé ekki örugg til þess að staðfesta kennitölu þar sem ekki er ljóst hvort um falsaða útgáfu forritsins sé að ræða eða ekki. Nauðsynlegt er að óska eftir staðfestingu á aldri viðkomandi með framvísun gildra, hefðbundinna persónuskilríkja, s.s. nafnskírteinis, ökuskírteinis eða vegabréfs.“
Barnið tekur áhættu
Tilgangur VPN-þjónustunnar er að breyta upplýsingum sem birtast á island.is og í netbönkum. Stjórnandi þjónustunnar breytir því kennitölu sem birtist bæði í netbanka og á island.is. Til að kaupa þjónustuna þurfa ungmennin að fylla út rétta kennitölu sína og greiða á netinu í gegnum greiðslumiðlunina Stripe. Rekstraraðilinn hefur því undir höndunum raunverulega kennitölu barnsins, fullt nafn, netfang og í nokkrum tilvikum ljósmynd og þann aldur sem barnið óskaði eftir að yrði sýndur.
Með þessu er barnið að taka áhættu, en þjónustuveitandinn getur lesið umferð barnsins á raftækinu, þar með talið upplýsingar sem birtast eftir að barnið skráir sig inn í heimabankann. Þjónustan getur líka breytt þessari umferð, þ.e. breytt því sem notandinn sér. Þetta umfang getur þjónustuveitandinn aukið án vitneskju barnsins og gæti þar með skoðað umferð tengda tölvupósti, samfélagsmiðlum eða öðrum skilaboðum. Eins getur þjónustuveitandinn séð hvaða vefsíður og forrit barnið notar.
Lögreglan beinir eftirfarandi til foreldra og forráðamanna:
- Athugið hvort VPN stillingin (e. VPN profile) sé uppsett.
Á iPhone eða iPad: Settings → General → VPN & Device Management. Leitið að stillingu sem heitir „Island Surge VPN“. - Athugið hvort skírteinið sé uppsett á símanum.
Settings → General → About → Certificate Trust Settings. Ef skírteini sem hafa nafnið „Surge Generated CA“ er þar og kveikt á því er VPN stillingin virk. - Fjarlægið stillinguna.
Í VPN & Device Management: Veljið stillinguna og síðan Remove Profile. Þá hverfur skírteinið og VPN-tengingin líka. - Breytið aðgangsorðum að netbanka og fylgist með bankareikningum sem notaðir voru á meðan VPN stillingin var virk og tilkynnið allt sem er óvenjulegt til ykkar viðskiptabanka. Hafið samband við ykkar viðskiptabanka ef grunur vaknar um misnotkun.
- Lögregla mun bjóða upp á að aðstoða foreldra/forráðamenn við að taka stillinguna út á morgun, fimmtudaginn 15. október, á milli kl. 11 og 12 á lögreglustöðinni við Hverfisgötu (inngangur nær Snorrabraut).