Fréttir

Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“

Mynd

Eigendur gleraugnaverslunar sem barst krafa um bótagreiðslu, vegna notkunar á tónlist í myndbandi á samfélagsmiðli, leggja til að höfundalögum verði breytt, m.a. þannig að greinarmunur verði gerður á vísvitandi og markvissum brotum á höfundarrétti og brotum sem séu ekki af ásetningi. Hvetja eigendur verslunarinnar einnig til þess að staða lítilla og meðalstóra fyrirtækja gagnvart bótakröfum eins og versluninni barst verði styrkt.

Gleraugnaverslunin Plusminus Optic er starfrækt í Smáralind. Umsögn í nafni verslunarinnar hefur verið lögð fram við frumvarp um breytingu á höfundalögum, sem nú er til meðferðar á Alþingi. Það var Logi Már Einarsson menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra sem lagði frumvarpið fram en það gengur aðallega út á herða refsingar við stórfelldum brotum á höfundarrétti.

Í umsögn Plusminus Optic segir að hún sé lögð fram í tilefni af því að versluninni hafi borist krafa um greiðslu hárrar fjárhæðar vegna notkunar á tónlist í myndbandi á samfélagsmiðli, án heimildar viðkomandi tónlistarmanns. Er lögð áhersla á að myndbandið hafi verið:

„Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn.“

Það er ekki tekið fram hversu há krafan var nákvæmlega en það kemur fram að hún hafi numið hundruðum þúsunda króna. Þess er heldur ekki getið eftir hvern tónlistin var.

Munur

Er í umsögninni lögð áhersla á að notkun fyrirtækisins á umræddri tónlist hafi verið takmörkuð. Tónlistin hafi komið fyrir í myndskeiði sem fyrirtækið hefði birt á samfélagsmiðli. Um hafi verið að ræða nokkra sekúndna hljóðbút úr lagi sem hafi verið uppi á samfélagsmiðlinum í skamman tíma og hlotið sárafá áhorf, en myndskeiðið hafi verið fjarlægt af samfélagsmiðlinum þegar málið kom upp. Er ítrekað að alls ekki hafi verið um einbeittan brotavilja að ræða:

„Þetta tilvik kom til af fullkomnu ásetningsleysi.“

Þrátt fyrir þessa takmörkuðu notkun og engan ásetning hafi hin háa bótakrafa borist.

Telja eigendur verslunarinnar að gera verði skýran greinarmun á slíkum tilvikum og stórfelldri, skipulagðri eða ítrekaðri dreifingu höfundarréttarvarins efnis í atvinnuskyni. Umfang, eðli og áhrif brotsins geti verið gerólík, og eðlilegt sé að sá munur endurspeglist í fjárhagslegum afleiðingum þess. Í greinargerð með frumvarpinu sé lögð áhersla á að bregðast við alvarlegum höfundarréttarbrotum, meðal annars stórfelldri og skipulagðri dreifingu efnis. Segjast eigendur versunarinnar telja mikilvægt að sú nálgun endurspeglist jafnframt í heildstæðri endurskoðun höfundalaga, þannig að úrræði rétthafa séu ekki einungis virk gagnvart alvarlegum brotum heldur einnig hófleg og fyrirsjáanleg gagnvart smávægilegri brotum.

Kröfur

Í umsögninni eru síðan færð ítarleg rök fyrir því að í höfundalögum verði að skýra betur viðmið um hvernig bótakröfur vegna brota á höfundarrétti séu reiknaðar út.

Lítil og meðalstór fyrirtæki geti staðið frammi fyrir því að fá kröfur þar sem ekki sé ljóst hvernig fjárhæðin hefur verið reiknuð, hvaða tjón hún á að bæta eða hvernig hún samræmist umfangi þeirrar notkunar sem um ræði.

Er lagt til að í lögin verði bætt við ákvæði um að fjárhæðir skaðabóta, vegna óheimilar notkunar á höfundarréttarvörðu efni, taki mið af raunverulegu tjóni rétthafa, eðli og umfangi notkunar, hugsanlegum fjárhagslegum ávinningi og saknæmi háttseminnar. 

Er sömuleiðis lagt til að takmörkuð útbreiðsla, stuttur birtingartími, skortur á ásetningi og viðbrögð fyrirtækis þegar því verði kunnugt um mögulegt brot hafi vægi við ákvörðun bóta.

Er einnig ítrekað á ný það mat eigenda verslunarinnar að löggjöfin endurspegli með skýrari hætti muninn á vísvitandi brotum og gáleysislegri eða óviljandi notkun höfundaréttarvarins efnis. Í stafrænu umhverfi geti fyrirtæki birt myndskeið á samfélagsmiðlum þar sem tónlist eða annað höfundaréttarvarið efni komi fyrir án þess að ætlunin hafi staðið til þess að nýta réttindi annarra án heimildar. Það sé ekki sambærilegt við markvissa nýtingu höfundaréttarvarins efnis í atvinnuskyni eða skipulagða dreifingu þess í hagnaðarskyni.

Vörn

Er einnig í umsögninni rakið að það geti reynst litlum fyrirtækjum eins og versluninni erfitt vegna kostnaðar að verjast bótakröfu af þessu tagi eða að fá óháð mat á upphæð hennar. Við slíkar aðstæður geti jafnvel reynst hagstæðara að greiða kröfuna þótt rök séu fyrir því að hún sé of há.

Er að lokum hvatt til þess að höfundalög taki mið af þeim veruleika sem lýst er í umsögninni án þess að draga úr lögmætri vernd höfundaréttar. Markmiðið eigi að vera að tryggja réttlátt jafnvægi milli hagsmuna rétthafa og þeirra fyrirtækja sem þurfi að geta starfað innan skýrrar og fyrirsjáanlegrar lagaumgjarðar.

DV leitaðist eftir nánari upplýsingum um málið og bótakröfuna hjá eigendum Plusminus Optic sem vildu hins vegar ekki tjá sig umfram það sem fremur kemur í umsögninni. Leggja eigendurnir, í skriflegu svari við fyrirspurn DV, áherslu á að umsögnin sé hugsuð sem málefnalegt innlegg og beinist að almennri stöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja gagnvart bótakröfum og kostnaði við málsvörn.