Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir síbrotamanni til 3. nóvember næstkomandi.
Ætluð brot mannsins eru talin upp í úrskurðinum og fer þar mikið fyrir auðgunarbrotum og skemmdarverkum. Hann er m.a. kærður fyrir eignaspjöll og hótun á heilsugæslustöð í Reykjavík vegna atviks frá 14. apríl síðastliðnum. Þar er hann sagður hafa í viðtali við tvo lækna hótað þeim lífláti, kastað til hitamæli og slegið í tölvuskjá. Í framhaldi af því hafi hann í afgreiðslu heilsugæslunnar sparkað í miðavél sem þar stóð með þeim afleiðingum að vélin brotnaði.
Hann er sakaður um að hafa, hálfum mánuði síðar, kastað steinum í bíla fyrir utan sjúkrahús í Reykjavík með þeim afleiðingum að dældir og rispur sáust á tveimur bílnum.
Einnig er hann sakaður um fjölmörg innbrot og þjófnaði.
Maðurinn hefur verið kærður fyrir samtals 40 afbrot og krafðist Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu framlengingar á gæsluvarðhaldi á þeim forsendum að yfirgnæfandi líkur séu á því að hann haldi áfram brotastarfsemi sinni verði hann frjáls ferða sinna. Í rökstuðningi embættisins fyrir gæsluvarðhaldi segir meðal annars: „Í ljósi fjölda þeirra brota sem kærði er grunaður um og alvarleika þeirra telur lögreglustjóri nauðsynlegt að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi svo færi gefist til að ljúka þeim málum sem til meðferðar eru. Lögregla hefur undanfarið margoft haft afskipti af og því er ljóst að vægari úrræði dugi ekki til að ná þeim markmiðum sem að er stefnt. Þá telur lögregla ljóst að kærði muni ekki fá skilorðsbundinn dóm vegna fjölda þeirra mála sem um ræðir. Af málsgögnum verður ráðið að kærði sé þar að auki heimilislaus, og í mikilli neyslu og án atvinnu. Kærði hefur hlotið 18 refsidóma frá árinu 2007 og verið dæmdur fyrir auðgunarbrot m.a. annars rán.“
Úrskurðinn má lesa hér.