Fréttir

Furða sig á andvaraleysinu - „Hvers vegna er ekki meiri reiði yfir þessu?“

Mynd

Bíll keyrði á átta ára gamalt barn í Mosfellsbæ í fyrradag og ók svo í burtu. Ökumaðurinn gaf sig fram eftir að lögregla lýsti eftir honum. Fréttir sem þessar hafa borist okkur reglulega undanfarin misseri en engu að síður hefur ekki verið kallað eftir sérstökum aðgerðum til að tryggja öryggi barna í umferðinni. Sem áður sé ábyrgðinni velt á börnin frekar en ökumenn. Ellefu stjórnarmeðlimir Samtaka um bíllausan lífsstíl spyrja, í aðsendri grein hjá Vísi, hvers vegna svona fréttir veki ekki meiri reiði en þær gera.

„Þetta eru engin einsdæmi. Við lauslega yfirferð íslenskra fréttamiðla síðustu tveggja ára má finna frásagnir af því að ekið hafi verið á að minnsta kosti 22 börn hér á landi. Tuttugu og tvö börn sem voru úti að ganga, hjóla eða einfaldlega fara ferða sinna. Og það eru aðeins þau sem rötuðu í fréttir.

Hvers vegna er ekki meiri reiði yfir þessu? Hvernig stendur á því að ítrekaðar fréttir af ákeyrslum á börn virðast vart raska ró okkar? Við lesum að barn hafi sloppið með skrekkinn, öndum léttar og höldum áfram með daginn. Eins og það sé ásættanleg niðurstaða að átta ára barn hafi aðeins fengið blóðnasir þegar ekið var á það.

Kannski segir þetta eitthvað um hversu undarlega skekkt viðhorf okkar til umferðaröryggis er orðið.“

Ábyrgðinni varpað á börnin 

Greinarhöfundar rekja að börnum sé kennt að gæta sín í umferðinni. Þau eiga að líta til beggja hliða, nota hjálm, bera endurskinsmerki og vera sífellt á varðbergi. Þetta séu skynsamlegar ráðstafanir en stundum mætti þó ætla að það séu börnin sem beri ábyrgð á því að verða ekki fyrir bílum. Spyrja greinarhöfundar hvar sambærileg áhersla er gagnvart ökumönnum.

„Hvar er sambærileg aukin áhersla á ábyrgð þeirra fullorðnu sem aka margra tonna ökutækjum um göturnar okkar? Hvers vegna gerum við ekki ríkari kröfur um að ökumenn hægi á sér, fylgist með umhverfinu og sýni þá aðgát sem fylgja á því að stjórna ökutæki sem getur valdið öðrum lífshættulegum áverkum á augabragði?

Börn eru óútreiknanleg. Þau hlaupa, leika sér, gleyma sér og gera mistök. Það er hluti af því að vera barn. Við eigum ekki að ætlast til þess að þau hegði sér eins og fullorðnir, hvað þá að afleiðingar þess að þau geri það ekki geti verið þeim lífshættulegar. Það er okkar, hinna fullorðnu, að skapa þeim öruggt umhverfi.“

Kalla eftir vitundarvakningu

Eins þurfi að horfast í augu við það að götur á Íslandi eru hannaðar til að greiða leið bíla en ekki út frá öryggi gangandi og hjólandi. Það sé erfitt að kenna börnum að fara varlega og senda þau svo út í umhverfi sem reiknar með því að vegfarendur bregðist alltaf rétt við. Samkvæmt Samgöngustofu slösuðust 55 börn á aldrinum 0-14 ára sem gangandi eða hjólandi vegfarendur á síðasta ári. Birtar tölur segi þó ekkert um það hversu mörg þeirra urðu fyrir bíl, en greinarhöfundar segja Samgöngustofu sjálfa hafa viðurkennt að slys væru vanskráð. Þar með sé ekki einu sinni hægt að nálgast áreiðanlegar upplýsingar um hversu oft ekið er á börn á Íslandi.

Greinarhöfundar spyrja hvort enginn ætli að hugsa um börnin. Það sé löngu kominn tími til að krefjast svara og ábyrgðar. Það þurfi að sýna fram á umfang vandans og beina fræðslu að bæði ökumönnum og börnum. Lögreglan þurfi aukið svigrúm til að hafa eftirlit með hættulegri aksturshegðun og hið opinbera þurfi að forgangsraða fjármunum í öruggari götur.

Íslendingar þurfi að hætta að líta á ákeyrslur á börn sem óheppileg en óumflýjanleg atvik. Samtök um bíllausan lífsstíl kalla eftir alvöru vitundarvakningu frekar en enn einni herferðinni þar sem börnum er sagt að fara varlega. Umferðin eigi að laga sig að börnunum en ekki öfugt.