Fréttir

Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“

Mynd
Scott kenndi áfenginu um hegðun sína.

Breskur maður á fertugsaldri hefur verið handtekinn eftir að hafa fróað sér í lest, meðal annars fyrir framan konur, í samanlagt 13 klukkutíma. Maðurinn segist eiga við áfengisvandamál að stríða.

Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.

Roman Scott, 35 ára maður frá Sutton í úthverfum Lundúna hefur verið dæmdur í 17 mánaða fangelsi fyrir að runka sér á almannafæri í lestum. Athæfið varði samanlagt í 13 klukkutíma.

Í desember á síðasta ári gekk Scott á milli lesta, beraði sig og fróaði sér fyrir framan konur. Vakti hann vitaskuld mikinn viðbjóð annarra farþega og í eitt skiptið ýttu þeir honum út úr lest eftir að hann hafði berað sig fyrir framan tvær konur.

Kenndi drykkju um

Í eitt skiptið tróð hann sé við hliðina á konu í lest í Manchester og festi hana í sæti sínu. Svo reif hann fram á sér skaufann og byrjaði að eiga við sig. Konan og aðrir farþegar létu lestarvörð vita af þessu en Scott hætti ekki heldur þess í stað byrjaði að áreita aðrar konur í lestinni.

„Drykkjan ber mig stundum ofurliði,“ sagði Scott þegar lögreglan handtók hann loksins.

Mætti fullur á skilorðsfund

Scott hlaut 17 mánaða dóm þann 25. september en var sleppt úr haldi 1. október, það er innan við viku seinna. Það er samkvæmt áætlun breskra yfirvalda um að sleppa föngum sem ekki hafa framið mjög alvarlega glæpi snemma úr fangelsi.

Scott virðist hins vegar ekki hafa lært sína lexíu því að hann mætti ölvaður á fyrsta fund hjá skilorðsfulltrúa sínum. Fyrir fundinn lá hann flatur á gólfinu í biðstofunni og var með dónaleg ummæli við starfsfólkið. Hefur verið lagt til að hann verði aftur sendur í fangelsi.

„Vegna framkomu hans var ekki unnt að halda áfram með fundinn á öruggan hátt og skilorðinu því rift. Hegðun hans bendir til aukinnar hættu á frekari brotastarfsemi og er talin ógna öryggi almennings. Því er talin þörf á að kalla hann aftur í varðhald til að vernda almenning og koma í veg fyrir frekari brot,“ sagði skilorðsfulltrúinn.