Alfreð Ásberg, framkvæmdastjóri Sambíóanna, segir að sem viðskiptavinur Ölgerðarinnar í 14 ár þá finnist honum umfjöllun Kveiks um fyrirtækið gefa of einhliða mynd af fyrirtækinu og þeirra viðskiptaháttum, þeir hafi ekki gert neinar kvaðir á bíóið að hætta að selja Coca-Cola.
Í þætti Kveiks í gærkvöldi var rætt við forsvarsmenn handverksbrugghúsa og smærri innflutningsaðila sem saka Ölgerðina um að misnota markaðsráðandi stöðu, bæði hvað varðar sölu áfengis og annarra drykkja.
Í síðustu viku gerði Samkeppniseftirlitið húsleit hjá Ölgerðinni en ekki hefur verið greint frá hvers vegna. Jón Þorsteinn Oddleifsson, forstjóri Beru, móðurfélags Ölgerðarinnar, sagði í yfirlýsingu að komi í ljós að eitthvað í framgöngu fyrirtækisins á markaðnum standist ekki skoðun muni fyrirtækið taka það til endurskoðunar.
Engar kvaðir um að selja ekki Coca-Cola
Alfreð segir að hans upplifun sé önnur en þeirra sem koma fram í þættinum.
„Við höfum verið í viðskiptum við Ölgerðina í um 14 ár. Þar áður vorum við hjá Vífilfelli en ákváðum að skipta eftir eigendaskipti þar. Okkur fannst þjónustan hafa versnað og töldum að vöruúrval Ölgerðarinnar hentaði okkur betur til framtíðar. Auk þess bauð Ölgerðin okkur betri samning. Ákvörðunin byggðist því á þjónustu, úrvali, kjörum og því hvað hentaði okkar rekstri,“ segir Alfreð.
„Engar kvaðir voru settar á okkur um að hætta að selja Coca-Cola þegar við færðum viðskiptin. Við hættum heldur ekki að selja það samstundis. Coca-Cola fékkst áfram í sjálfsölum Ölgerðarinnar hjá okkur og það þótti sjálfsagt af hálfu þeirra Ölgerðarmanna.“
Finnst umfjöllunin of einhliða
Það sem hann tók út úr þættinum var að Ölgerðin hefði náð góðum árangri á meðan minni birgjar ættu erfitt með að komast að með nýja vöru.
„Ég skil vel að það geti verið erfitt að koma nýrri vöru á markað. En þar skiptir fleira máli en viðskiptahættir stærri fyrirtækja. Hillupláss er takmarkað. Fyrirtæki og barir geta ekki tekið inn allar vörur sem þeim bjóðast og hafa ekki alltaf svigrúm til að bíða lengi eftir að sala fari af stað, ef hún gerir það yfirhöfuð. Í rekstri þarf að velja og hafna út frá eftirspurn, þjónustu og nýtingu á því plássi sem er til staðar,“ segir Alfreð. Þetta sé ekkert bundið við Ísland, nýir aðilar á drykkjarmarkaði í Bandaríkjunum glími einnig við erfiðleika við að fá hillupláss fyrir vörur sínar.
„Mér finnst jafnframt að RÚV þurfi í umfjöllun sem þessari að draga fram ólíka reynslu viðskiptavina. Ég saknaði sjónarhorns okkar sem höfum átt gott samstarf við Ölgerðina. Það er eðlilegt að spyrja gagnrýninna spurninga, en mér fannst myndin sem þátturinn dró upp of einhliða. Sjálfsagt er að fjalla um samkeppni og viðskiptahætti á drykkjarmarkaði og rannsaka það sem tilefni er til. Góð reynsla okkar segir ekki alla söguna, en hún á líka heima í umræðunni.“