Fréttir

Forstjóri BYKO dregur upp dökka mynd af stöðunni – „Vill einhver það?“

Mynd

Fyrirhuguð lækkun á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu iðnaðarmanna við íbúðarhúsnæði gæti aukið byggingarkostnað 100 fermetra íbúðar um 1,1 til 1,3 milljónir króna, samkvæmt útreikningum Samtaka iðnaðarins.

Þetta kemur fram í aðsendri grein Sigurðar Brynjars Pálssonar, forstjóra BYKO, í Morgunblaðinu í dag.

Í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2027 er lagt til að endurgreiðsluhlutfall virðisaukaskatts vegna vinnu við íbúðarhúsnæði lækki úr 35 prósentum í 20 prósent.

Sigurður telur að breytingin muni draga úr íbúðauppbyggingu, gera almenningi erfiðara fyrir að sinna viðhaldi fasteigna, ýta undir svarta atvinnustarfsemi og auka atvinnuleysi.

Hann gagnrýnir áformin harðlega og segir þau ganga þvert á yfirlýst markmið stjórnvalda um að fjölga íbúðum og gera húsnæði hagkvæmara.

Sigurður bendir á að byggingariðnaðurinn glími þegar við samdrátt og aukið atvinnuleysi. Við slíkar aðstæður ættu stjórnvöld að hans mati að hvetja til framkvæmda fremur en að auka kostnað við þær.

„Í stað þess að lækka endurgreiðsluna ætti að hækka hana – upp í 100%. Það væri einföld, markviss og áhrifarík aðgerð sem gæti skilað heimilum og atvinnulífinu verulegum ávinningi á augabragði. Og væntanlega ríkissjóði líka þegar grannt er skoðað,“ segir Sigurður, sem tekur þar með undir sjónarmið Birnu Óskar Einarsdóttur, forstjóra Húsasmiðjunnar, sem DV fjallaði um í gær.

Sjá einnig: Forstjóri Húsasmiðjunnar vill að ríkisstjórnin snúi við blaðinu – Leggur til róttæka breytingu

Sigurður varar við því að frekari samdráttur í íbúðabyggingum geti leitt til húsnæðisskorts, hækkandi íbúðaverðs, aukinnar verðbólgu og hærri vaxta.

„Vill einhver það?“ spyr hann.

Hann gagnrýnir einnig tekjuáætlun ríkisstjórnarinnar, en samkvæmt fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að breytingin skili ríkissjóði um 3,6 milljörðum króna í auknar tekjur.

„Það er augljóst ofmat,“ segir Sigurður og bendir á að hærri kostnaður geti orðið til þess að framkvæmdir dragist saman eða að fleiri leiti í óskráða atvinnustarfsemi.

Sigurður telur að full endurgreiðsla virðisaukaskatts geti lækkað kostnað heimila, stutt við atvinnu í byggingariðnaði og dregið úr svartri atvinnustarfsemi.