Fréttir

Fluttu til Íslands og náðu að spara 840 þúsund krónur á einum mánuði – „Með öllu inniföldu“

Mynd
Paula Tado og kærasti hennar vinna á veitingastað. Skjáskot/TikTok

Ung spænsk kona flutti til Íslands ásamt kærasta sínum til að vinna í veitingageiranum. Hún segist ná að spara mikinn pening í hverjum mánuði.

Myndband hinnar ungu spænsku Paulu Tado á samfélagsmiðlinum TikTok hefur fengið mikla athygli. En í myndbandinu lýsir hún því hvað hún og kærasti hennar nái að spara mikinn pening eftir að þau fluttu til Íslands.

Í myndbandinu segir hún að þau nái að spara 6161 evru á mánuði, eða um 840 þúsund krónur.

„Með öllu inniföldu. Þetta er í raun mjög athyglisvert,“ segir Paula í myndbandinu.

Líkt og fjölmargt ungt fólk komu Paula og kærasti hennar til Íslands fyrir nokkrum mánuðum til þess að starfa í veitinga og ferðamannaiðnaðinum. Helsta ástæðan eru góð laun.

Vinna mikið

Greinir hún frá því að parið hafi þénað 6548 evrur í laun í síðasta mánuði, það er tæplega 900 þúsund og náð að spara bróðurpartinn af því.

Parið var ekki búið að tryggja sér atvinnu þegar þau komu hingað en voru staðráðin í að afla sér tekna. Fundu þau loks atvinnu á veitingastað og hafa mjög sveigjanlegan vinnutíma.

„Mér finnst þetta mjög áhugavert. Í síðasta mánuði fékk maki minn útborgaðar 3.125,75 evrur, að öllum kostnaði meðtöldum (eftir skatta og húsaleigu),“ sagði hún. Það er tæplega 430 þúsund krónur. Parið vinnur mjög mikið, eða rúmlega 50 klukkustundir á viku.

Hvernig fara þau að þessu?

En hvernig fer parið að því að halda sér uppi og spara svona mikinn pening á laununum sínum? Sérstaklega í ljósi þess að Ísland er þekkt fyrir hátt verðlag og Ísland er með lægri kaupmátt en mörg lönd í Evrópu, til dæmis Þýskaland, Frakkland, Holland og Belgíu.

Húsaleigan er dregin af laununum en vinnuveitandinn leigir parinu herbergi fyrir 520 evrur á mánuði. Það er rúmlega 70 þúsund krónur. Þá greinir Paula einnig frá því að veitingastaðurinn sem þau vinna hjá bjóði upp á ýmis önnur fríðindi, svo sem morgunverði, hádegisverð og kvöldverð þá daga sem þau vinna.

Lítið í mat og afþreyingu

Segir Paula að parið komist sérstaklega vel af varðandi kaup á matvælum.

„Í síðasta mánuði vörðum við samtals 173,12 evrum, sem er virkilega lág upphæð. Fyrir mig er þetta lykillinn að því að spara peninga,“ segir Paula. En það gera um 24 þúsund krónur.

Parið eyddi 169,4 evrum, eða 23 þúsund krónum í afþreyingu, og 44 í ýmist annað, eða 6 þúsund krónur.