Fréttir

Feðgar í málaferlum – Dánarbú föðurömmunnar dró dilk á eftir sér

Mynd
Héraðsdómur Reykjavíkur. Mynd: Sigtryggur Ari

Sonur stefndi föður sínum fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og krafði hann um 10,6 milljónir króna vegna láns sem hann hafði veitt föðurömmu sinni til fasteignakaupa. Amman er látin og faðirinn eini erfingi hennar. 

Dómurinn var kveðinn upp 14. október 2026. Faðirinn hafði krafist sýknu og byggði meðal annars á því að ekki væri sannað að lánið hefði verið veitt að fullu og að fé hefði verið tekið út af bankareikningum móður hans sem ætti að koma til frádráttar skuldinni.

Málið á rætur að rekja til fasteignakaupa ömmu sonarins árið 2012. Sonurinn aðstoðaði hana við kaupin og samskipti við lánastofnanir. Hún hafði takmarkaða fjármuni og fékk frá honum lán sem átti að standa undir kaupum og endurbótum á íbúðinni.

Í júlí 2014 undirritaði amman skuldaviðurkenningu þar sem hún viðurkenndi að skulda barnabarni sínu 6.176.716 krónur. Fjárhæðin var sögð samanstanda af fjórum greiðslum á árunum 2012 og 2013. Til tryggingar skuldinni gaf hún út tryggingarbréf að fjárhæð allt að tíu milljónum króna með veði í fasteigninni. Faðirinn og dóttir hans, systir lánveitandans, vottuðu bæði skjölin.

Skuldin var tilgreind í erfðafjárskýrslu

Amman lést í ágúst 2022 og faðirinn, þ.e. sonur hennar, erfði allar eignir hennar. Við einkaskipti á dánarbúinu var skuldin við son hans tilgreind í erfðafjárskýrslu. Upphaflega var tíu milljóna króna fjárhæð skráð en henni síðar breytt í 4,5 milljónir án þess að skýringar kæmu fram. Skiptum á búinu lauk í júní 2023.

Sonurinn krafði föður sinn um greiðslu skuldarinnar og höfðaði málið eftir að samningaviðræður um uppgjör skiluðu ekki niðurstöðu.

Faðirinn hélt því fram að ekki væri nægilega vel sýnt fram á að tvær af fjórum lánveitingunum hefðu átt sér stað. Hann benti meðal annars á að fjárhæðir hefðu verið millifærðar af reikningum ömmunnar á sömu dögum en ekki lægi fyrir hvert þær hefðu farið.

Héraðsdómur taldi skuldaviðurkenninguna hins vegar skýra og gögn málsins styðja að sonurinn hefði lánað ömmu sinni alla fjárhæðina. Meðal annars lá fyrir tölvupóstur þar sem sonurinn staðfesti að hann hefði greitt 500 þúsund krónur inn á reikning fasteignasölunnar vegna íbúðarkaupanna. Orðrétt segir þar: „[V]ar að leggja 500.000 inn á reikni[n]g í eigu Eignamiðlunar ehf. samkv. kaupsamni[n]gi.“

Lögmaður sem kom að gerð skuldaviðurkenningarinnar staðfesti einnig fyrir dómi að enginn vafi hefði verið á því að lánið hefði verið veitt að fullu.

Gögn föðurins óljós

Faðirinn hélt því jafnframt fram að sonurinn hefði tekið út samtals tæpar sex milljónir króna af bankareikningum ömmunnar á árunum 2012 til 2019 og að þær fjárhæðir ætti að draga frá skuldinni.

Sonurinn hafði haft umboð til að sinna tilteknum fjármálum ömmunnar. Hann skýrði meðal annars frá því að fjármunir hefðu farið í tannlækningar, lögmannskostnað og aðrar ráðstafanir, auk þess sem amman hefði sjálf tekið út hluta fjárins. Dómurinn taldi gögn föðurins um færslurnar óljós og ekki hefði verið sýnt fram á að þær hefðu verið greiðslur inn á lánið.

Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á kröfu sonarins að fullu. Faðirinn var dæmdur til að greiða honum 10.596.562 krónur auk dráttarvaxta og 1,3 milljónir króna í málskostnað.

Dóminn má lesa hér.