Fréttir

Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“

Mynd
Alexandra Briem og Sveinn Waage. Samsett mynd/Skjáskot af vef RÚV

„Ekki skiptir maður við bófa! Hvað verður um hátíðarblandið? Hvar er núna gamla (en alls ekki bragðgóða) Sanitas maltið, Thule appelsínið og Vallasdrykkurinn góði?,“ spyr Björn Þorláksson fjölmiðlamaður eftir þátt Kveiks í gærkvöldi þar sem rætt var við forsvarsmenn handverksbrugghúsa og smærri innflutningsaðila sem saka Ölgerðina um að misnota markaðsráðandi stöðu, bæði hvað varðar sölu áfengis og annarra drykkja. 

Í síðustu viku gerði Samkeppniseftirlitið húsleit hjá Ölgerðinni en ekki hefur verið greint frá hvers vegna. Jón Þorsteinn Oddleifsson, forstjóri Beru, móðurfélags Ölgerðarinnar, sagði í yfirlýsingu að komi í ljós að eitthvað í framgöngu fyrirtækisins á markaðnum standist ekki skoðun muni fyrirtækið taka það til endurskoðunar.

Sjá einnig: Samkeppniseftirlitið í húsleit hjá móðurfélagi Ölgerðarinnar

Sjá einnig: Saka Ölgerðina um að misnota markaðsráðandi stöðu - „Þú keppir ekkert við þetta“

Sjá einnig: Ölgerðin svarar fyrir sig eftir umfjöllun Kveiks í gærkvöldi

Hlutabréf í Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar lækkuðu kauphöllinni í morgun, fyrir hádegi var verðið um 5% lægra en við opnun markaða, það hækkaði svo lítillega eftir hádegi. Þá hefur verið titringur vegna þáttarins í hópnum Verðbréfatips á Facebook í dag. 

 

Þá sagði Alfreð Ásberg, framkvæmdastjóri Sambíóanna, að sem viðskiptavinur Ölgerðarinnar í 14 ár þá finnist honum umfjöllun Kveiks um fyrirtækið gefa of einhliða mynd af fyrirtækinu og þeirra viðskiptaháttum, þeir hafi ekki gert neinar kvaðir á bíóið að hætta að selja Coca-Cola.

Sjá einnig: Framkvæmdastjóri Sambíóanna stígur fram með sína reynslu af Ölgerðinni

Stóra spurningin hvers vegna aðferðirnar hafi viðgengist í áratugi

Töluvert hefur verið rætt um þáttinn á samfélagsmiðlum í gærkvöldi og í dag. Alexandra Briem, fyrrverandi forseti borgarstjórnar, segir að málið hljóti að vera skólabókardæmi um misnotkun á markaðsráðandi stöðu.

„Til hvers erum við með þannig löggjöf ef ekki akkúrat til þess að koma í veg fyrir að þeir aðilar sem eru stærstir og vinsælastir noti þá aðstöðu til þess að koma í veg fyrir að aðrir komist að? Almenningur hefur hagsmuni af því að fá aðgengi að fjölbreyttu úrvali og að verðmyndun verði í raunverulegu samkeppnisumhverfi,“ segir hún í færslu á Facebook.

„Stórir aðilar á markaði tala oft eins og þeir styðji frjálsan markað, en oft eru þeir þá að meina sitt frelsi til að einoka markaðinn eða bola burt samkeppni. Þau sem fá nóg tala um að það eigi kannski bara ekki að vera markaðsumhverfi yfir höfuð.“

Alexandra segir að það séu ekki einu tveir kostirnir að vilja leyfa stórfyrirtækjum að gera allt eða vilja ríkisvæða allt.

„Stundum held ég að fólk hafi gleymt því að hlutverk hins opinbera í velferðarsamfélagi sem byggist samt á markaðshagkerfi er akkúrat ekki að halda bara að sér höndum og láta markaðinn gera það sem honum sýnist, heldur að setja viðmið, reglur og viðurlög, til þess að verja almannahag í því umhverfi. Taka á markaðsbrestum, passa að enginn einn verði svo stór að enginn annar komist að, og reka suma hluti sjálft þar sem samkeppni virkar ekki,“ segir hún.

„Það sem er stóra spurningin í þessu tiltekna máli er ekki hvort þetta sé í lagi, heldur hvers vegna í ósköpunum svona aðferðir hafi viðgengist árum og áratugum saman.“

„Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“

Sveinn Waage ráðgjafi segir í færslu sinni á Facebook að hann hafi verið spenntur að horfa á þáttinn í gærkvöldi sem myndi breyta hvernig reynsla hans og þekking á Ölgerðinni hefur talið honum trú um. Sveinn starfaði fyrir Ölgerðina á árum áður, sem vörumerkjaráðgjafi og fyrirlesari í Bjórskólanum. 

„Og þetta var innihaldið: Tvö lítil brugghús sem hafa gert ágætt mót en ekkert meira, kvarta yfir stærð/vinsældum án þess að hafa nokkuð annað í höndunum en einmitt það. Að e-r vilji ekki kaupa vöru sem selst illa/ekki þarf ekki að vera neitt annað en wise business,“ segir Sveinn. 

„Samtöl á milli manna þar sem engin gögn eru til staðar.. aðeins túlkun og/eða verið að segja "sorry hef ekki áhuga á vörunni þinni en kýs að kenna öðrum um nei-ið mitt" Og svo er "falda myndavélin" Ta da! Vodka Redbull ekki með Redbull!? Man e-r eftir Vodka í Magic og öllu því sem kom í staðinn? Ætli "Romm og Kók" sé ekki afgreitt öðruvísi nokkuð oft á hverri helgi? Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“

Spyr Sveinn hvort engum hafi dottið í hug að ræða við ánægða viðskiptavini, sambærileg gagnrýni kom einnig á síðasta þátt Kveiks.

„Gæti verið að árangur Ölgerðarinnar undanfarin ár, sem maður fékk að taka þátt í, skýrist af betri vörum, betri þjónustu og öflugri kynningu s.s. Bjórskólanum í 10ár bæði fyrir almenning og veitingageirann? Einokun og illska var þar ekki meiri en svo að Ölgerðin keypti bjóra frá öðrum birgjum á Íslandi sem voru notaðir í kennsluna,“ segir Sveinn.

„Í alvöru, ég beið eftir "smoking gun" eins og Kveikur hefur fært okkur áður. Þetta var minnsta stærðin af stjörnuljósi.. brotnu blautu stjörnuljósi. Að Ölgerðin svo bjóðist til að hjálpa við rannsókn á meintum brotum samkeppnislaga segir okkur allt sem þarf.“

Stólpagrín gert að Ölgerðinni

Þá hefur Grínastían gert stólpagrín að Ölgerðinni með því að sýna starfsmenn haga sér eins og gengi:

Hér má horfa á Kveiksþáttinn