Fréttir

Afdrifaríkur flutningur á píanói - Reyndu árangurslaust að neita því að vinnuslys hefði átt sér stað

Mynd
Mynd af píanói/Getty.

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt flutningafyrirtæki til að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum um 1,6 milljónir króna í vangoldin laun auk dráttarvaxta. Hafði starfsmaðurinn slasast við flutninga á píanói og í kjölfarið látið af störfum. Fyrirtækið hélt því fram að ekkert vinnuslys hefði átt sér stað og að starfsmaðurinn hefði aldrei tilkynnt forsvarsmönnum þess um slíkt. Gögn málsins leiddu hins vegar annað í ljós, að mati dómsins.

Starfsmaðurinn byrjaði í hlutastarfi hjá fyrirtækinu í febrúar 2024 og var síðan ráðinn í fullt starf í apríl það ár. Í júní þetta sama ár var starfsmaðurinn að flytja píanó ásamt samstarfsmönnum. Sagði hann að þeir hefðu verið að flytja píanóið niður þröngan stiga og það hafi byrjað að velta. Hefði hann þá gripið í píanóið og stigahandriðið til að koma í veg fyrir að það myndi losna úr flutningsböndum sem notuð voru við flutninginn. Við það hafi hann fengið hnykk á bakið.

Í greinargerð fyrirtækisins var hins vegar fullyrt að ekkert slíkt slys hefði átt sér stað en starfsmaðurinn tilkynnti Vinnueftirlitinu um slysið hálfu ári síðar, í desember 2024. Fann starfsmaðurinn fyrir miklum verkjum eftir slysið og átti erfitt með að bæði að teygja og snúa sér. Leitaði hann í nokkur skipti til læknis um sumarið og fékk vottorð um að hann væri óvinnufær.

Uppsögn

Um mánuði eftir slysið, í júlí 2024, sagði starfsmaðurinn upp á þeim forsendum að hann fyndi til, treysti sér ekki til áframhaldandi vinnu og yrði að finna sér starf sem væri ekki jafn líkamlega krefjandi.

Uppsögnin var send í tölvupósti og starfsmaðurinn fékk svar frá fyrirtækinu þar sem kom fram að hann fengi greidd full laun fyrir júní og tvo veikindadaga. Sagði fyrirtækið að hann hefði þegar fengið átta veikindadaga greidda sem væri meira en hann hefði átt rétt á. 

Sneri starfsmaðurinn sér til stéttarfélags síns vegna vangoldinna launa. Fór svo að lögmaður krafðist fyrir hans hönd að fyrirtækið greiddi þriggja mánaða laun vegna vinnuslyssins auk orlofs, en upphæðin var um 1,6 milljónir króna.

Kröfunni var hafnað á þeim forsendum að starfsmaðurinn hefði ekki farið erftir verklagsreglum um líkamsstöðu við flutningana á píanóinu og að starfsmaðurinn hafi mætt til vinnu næstu 10 daga á eftir. Hann hafi ekki kvartað og ekki sagt að hann réði ekki við þau léttari verk sem hann hafi verið settur í. Þar að auki hefði aðeins komið fram í hluta þeirra vottorða sem hann hafi skilað inn að þau væru vegna vinnuslyss.

Alvarlegt

Í tölupóstsamkiptum milli lögmanns starfsmannsins og lögmanns fyrirtækisins kom fram af hálfu þess fyrrnefnda að aldrei hefði verið gerð athugasemd við vottorðin. Forsvarsmönnum fyrirtækisins hafi verið full kunnugt um slysið en ekki tekið það alvarlega. Starfsmaðurinn hafi margbeðið um að slysið yrði tilkynnt til yfirvalda og tryggingafélags fyrirtækisins en því hafi ekki verið sinnt.

Í kröfu starfsmannsins um greiðslu vangoldinna launa var vísað m.a. til ákvæða viðeigandi kjarasamnings um vinnuslys og ákvæða laga um forföll vegna vinnuslys. Í samningnum væri skýrt tekið fram að forfallist starfsmaður af völdum slyss við vinnu skuli hann auk réttar til launa í veikindum halda dagvinnulaunum í þrjá mánuði. Starfsmaðurinn hafi reynt að harka af sér, enda nýr í starfi en síðan fengið vottorð um að hann væri óvinnufær. Í kjarasamningnum kæmi að auki fram að óvinnufærni vegna slyss gæti hvort heldur komið fram strax eftir slys eða síðar.

Upphæðin byggði á ákvæðum í kjarasamningnum og lögmaður starfsmannsins hafnaði ölllum athugasemdum fyrirtækisins um gildi vottorðanna sem starfsmaðurinn lagði fram.

Ekki satt

Fyrirtækið varðist kröfu starfsmannsins hins vegar á þeim forsendum að ekkert vinnuslys, í skilningi vinnuréttar um að vinnuslys sé óvæntur atburður, hefði átt sér stað. Um hafi verið að ræða veikindi, mögulega álagsmeiðsli enda hefði starfsmaðurin lagt fram vottorð þar sem komið hefði fram að hann væri óvinnufær vegna sjúkdóms. Vottorðin væru misvísandi um hvort óvinnufærnin stafaði af vinnuslysi eða sjúkdómi, sum þeirra hafi verið gefin út án þess að starfsmaðurinn hefði verið skoðaður og eitt hafi verið gefið út aftur í tímann.

Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur segir að samkvæmt vitnisburði samstarfsmanna starfsmannsins hafi hann meitt sig í baki við flutningana á píanóinu.

Í greinargerð fyrirtækisins komi fram að ekkert vinnuslys hafi orðið við píanóflutninginn og að ekkert vinnuslys eða óhappatilvik hafi verið tilkynnt til fyrirtækisins, Vinnueftirlitsins eða lögreglu. Af tölvupóstsamskiptum, öðrum gögnum og vitnisburðum megi hins vegar ráða að fyrirtækinu hafi verið kunnugt um atvikið og að starfsmaðurinn hafi meiðst við flutninginn á píanóinu. Tölvupóstsamkipti staðfesti einnig að fyrirtækið hafi móttekið vottorðin um óvinnufærni starfsmannsins. Þar að auki hafi honum verið falin léttari verkefni fyrstu dagana eftir atvikið.

Segir héraðsdómur ljóst að samkvæmt lögum hafi fyrirtækinu borið að tilkynna atvikið til Vinnueftirlitsins. Það skipti ekki máli að starfsmaðurinn hafi mætt til vinnu í nokkra daga eftir atvikið og reynt að vinna léttari verk. Öll fyrirliggjandi vottorð greini frá því að hann hafi verið óvinnufær með öllu.

Víst slys

Telur dómurinn að fyrirliggjandi atvikalýsing frá samstarfsmönnum starfsmannsins gefi til kynna að um óvæntan atburð hafi verið að ræða og því uppfylli hann skilgreiningu vinnuréttar á vinnuslysi. Lýsingar þeirra gefi til kynna að píanóið hafi skyndilega verið við það að velta sem sé óvæntur atburður. Hefði fyrirtækið uppfyllt tilkynningaskyldu sína hefði verið hægt að upplýsa nánar um atvikið þegar í stað en einn samstarfsmannanna sagðist ekki muna atburðarásina að öllu leyti. 

Dómurinn bendir einnig á að tölvupóstsamskipti sýni fram á fyrirtækið hafi ekki véfengt vottorðin framan af eða neitað því í upphafi að starfsmaðurinn hafi orðið fyrir vinnuslysi.

Framburður yfirlæknis staðfesti einnig að starfsmaðurinn hafi meiðst í baki við flutningana á píanóinu. 

Héraðsdómur telur því sannað að vinnuslys hafi átt sér stað og samkvæmt lögum, um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla, eigi starfsmapurinn því rétt á greiðslu þriggja mánaða launa.

Fyrirtækinu ber því að greiða honum um 1,6 milljónir króna auk dráttarvaxta.