Fréttir

Vara við flóðum – Flætt gæti upp á bryggjur

Mynd
Landhelgisgæslan varar við því að sjávarstaða hæti orðið hærri en spár gefa til kynna.

Landhelgisgæsla Íslands varar við að búast megi við mjög hárri sjávarstöðu í óveðrinu á morgun vegna lágs loftþrýstings. Þetta geti valdið flóðum.

„Mjög djúp lægð nálgast landið og hefur Veðurstofan gefið út gular og appelsínugular viðvaranir. Stormviðvaranir eru í gildi á flestum spásvæðum til sjávar og vegna vindstyrks má búast við talsverðri og á sumum hafsvæðum mikilli ölduhæð,“ segir í tilkynningu Landhelgisgæslunnar.

Vegna hins lága loftþrýstings gæti sjávarstaða orðið hærri en spár gefa til kynna. Þar sem vindur og alda standa að landi gæti sjór mögulega flætt upp á bryggjur og gengið á land þar sem ströndin liggur lágt.

„Landhelgisgæslan hvetur því til aðgæslu við sjávarsíðuna og að hugað verði að skipum og bátum þar sem súgur getur myndast í höfnum. Jafnframt hvetur Landhelgisgæslan sjófarendur til að fylgjast vel með sjóveðurspám og gæta varúðar,“ segir í tilkynningunni.