Fréttir

Sigmar hættir sem þingflokksformaður og Pawel tekur við

Mynd

Sigmar Guðmundsson hefur láti af embætti sem formaður þingflokks Viðreisnar og Pawel Bartoszek hefur tekið við embættinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. Sigmar hefur verið í veikindaleyfi sem hann snýr til baka úr fljótlega en hann hefur óskað eftir því að taka að sér önnur verkefni á þingi. 

Tilkynningin er eftirfarandi:  

„Þingflokkur Viðreisnar hefur kosið Pawel Bartoszek sem formann þingflokksins á fundi sínum.

Pawel situr á þingi fyrir Reykjavíkurkjördæmi norður. Hann hefur verið formaður utanríkismálanefndar undanfarin tvö ár og situr í efnahags- og viðskiptanefnd, þingmannanefnd Íslands og ESB og Íslandsdeild þings ÖSE. Hann var fyrst kjörinn þingmaður Viðreisnar 2016 og svo aftur 2024.

Pawel Bartoszek:

„Ég er gríðarlega þakklátur fyrir að fá þetta tækifæri og fyrir það traust sem þingflokkurinn sýnir mér. Fram undan eru mikilvæg verkefni á Alþingi. Við erum til að mynda að ljúka afgreiðslu hallalausra fjárlaga sem stuðla að minni verðbólgu og lægri vöxtum, en það er eitt mikilvægasta verkefni þessarar ríkisstjórnar. Ég hlakka til að vinna að því að frjálslynd rödd Viðreisnar heyrist enn sterkar innan þings sem utan.”

Á sama fundi var María Rut Kristinsdóttir kjörin varaformaður þingflokksins og Grímur Grímsson ritari hans.

Sigmar Guðmundsson, sem snýr fljótlega aftur úr veikindaleyfi, hefur óskað eftir því að taka að sér önnur verkefni á þingi.“