Fréttir

Segir að svona ætli Halla og VR að taka ASÍ yfir

Mynd

Eins og kunnugt er hefur andað afar köldu á milli formanna tveggja fjölmennustu verkalýðsfélaga landsins, Eflingar og VR. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur gagnrýnt Höllu Gunnarsdóttur formann VR harðlega, nú síðast eftir að samningar tókust á síðustu stundu milli VR og atvinnurekenda, eftir að forystu félagsins hafði verið veitt umboð til að segja kjarasamningum upp. Hefur Sólveig Anna meðal annars sagt að Halla og annað forystufólk VR hafi beitt sér fyrir því að félagsmenn, sem séu margir hverjir á hærri launum en félagar Eflingar, fái hagstæðari kjarasamninga en Efling. Hefur Sólveig Anna lýst yfir miklum efasemdum um að Efling eigi yfirhöfuð lengur samleið með VR innan Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og hefur ljáð máls á að félag hennar yfirgefi ASÍ. Hefur Sólveig fyllyrt að VR sé að taka ASÍ yfir og í nýjum pistli á Facebook leitast hún við að færa rök fyrir þessu.

Vísar Sólveig Anna til fundar í miðstjórn ASÍ sem haldinn var 6. júní síðastliðinn. Á fundinum hafi verið tekin fyrir tillaga um breytingu á 34. grein laga ASÍ og lagt til að þremur varaforsetum yrði fækkað um einn eða tvo. Á fundinum hafi Halla talað fyrir tillögunni og tilkynnt að vilji stjórnar VR væri að varaforsetum yrði fækkað í einn.

Áhyggjur 

Sólveig Anna segir að á fundinum hafi hún sagt að stjórn Eflingar hefði áhyggjur af þeirri stöðu sem upp kæmi næði breytingin fram að ganga:

„Ég sagði að málið myndi ýfa upp allan ágreining, að um það yrði tekist á þinginu og að betra væri að greinin héldist óbreytt.“

Svo hafi hins vegar farið að forseti ASÍ, Finnbjörn A. Hermannsson, hafi borið upp tillögu um að varaforsetum sambandsins yrði fækkað í einn. Miðstjórn hafi samþykkt tillöguna sem fari því inn á þing ASÍ, sem hefst á morgun á Hilton Reykjavík, til umfjöllunar og svo í atkvæðagreiðslu:

„Ég óskaði eftir því að fært yrði til bókar að ég og stjórn Eflingar værum mjög ósáttar við niðurstöðuna og að við óttuðumst að deilur um fjölda varaforseta myndu taka yfir þingið.“

Sólveig Anna hefur gefið kost sér í embætti fyrsta varaforseta ASÍ. Hún segir að Halla hafi einnig gefið kost á sér í embætti varaforseta og fyrst sagt að ekki skipti máli um hvert varaforsetaembættanna væri að ræða en hins vegar hafi henni nú snúist hugur og hafi tilkynnt að hún bjóði sig fram til fyrsta varaforseta:

„Staðan er því sú að meðlimur í VR, Arnaldur Grétarsson, býður sig fram með stuðningi formanns VR til forseta ASÍ, formaður VR býður sig fram í embætti fyrsta varaforseta, og talar jafnframt fyrir því að varaforsetum verði fækkað úr þremur í einn. Með þessu reynir forysta VR að tryggja að formaður Eflingar, langstærsta félags verka og láglaunafólks á Íslandi með 28.000 meðlimi, hafi um fátt annað að ræða en að draga sig í hlé á vettvangi sambandsins. Ég sagði um daginn að formaður VR reyndi nú að sölsa undir sig ASÍ. Fólk hefur reynt að láta eins og það sé hugarburður í mér. Svo er ekki – það er bláköld og augljós staðreynd.“

Það mun því líklega draga til tíðinda á þingi ASÍ sem hefst eins og áður segir á morgun.