Forsvarsmenn handverksbrugghúsa og smærri innflutningsaðila saka Ölgerðina um að misnota markaðsráðandi stöðu, bæði hvað varðar sölu áfengis og annarra drykkja. Gerðir séu samningar við bari, útihátíðir, nemendafélög og fleiri aðila til að útiloka aðra en Ölgerðina. Þá hafi Ölgerðin mun greiðari aðgang að verslunum og meira að segja ÁTVR en aðrir.
Greint var frá þessu í þættinum Kveik á RÚV í kvöld og rætt við þrjá aðila sem segja erfitt eða ómögulegt að koma vörum sínum á markað vegna einokunarstöðu Ölgerðarinnar. Meðal annars myndi Ölgerðin borga og lána börum milljónir fyrir markaðskostnaði. Ölgerðin selji svo margar vörur að veitingamenn vilji ekki styggja þá.
Árni Hafstað framkvæmdastjóri brugghússins Gæðings sagði að það hefði alltaf verið tap á brugguninni og að samkeppnishindranir skipti þar mestu.
„Það er mjög erfitt að komast inn á markaðinn,“ segir Árni. Það er bari, veitingastaði, fríhöfn, einkareknar verslanir og ÁTVR. „„Ég hef oft rekið mig á að þegar ég reyni að selja mína vöru á bari eða veitingastaði að veitingamanninum þyki varan spennandi. En svo þegar við hittumst daginn eftir er eins og fæturnir hafi kólnað hjá veitingamanninum. Hann hefur farið að skoða sína stöðu og áttað sig á því að hann er með samning við einhvern aðila sem hann er að versla við og í samningnum er ákvæði sem hindra aðgengi annarra að þessum bar.“
Komast hvergi að
Laufey Sif Lárusdóttir, framkvæmdastjóri Ölverks, segir sömu sögu.
Sjá einnig:
Samkeppniseftirlitið í húsleit hjá móðurfélagi Ölgerðarinnar
„Það er erfitt að koma okkar vörum, bjórnum, á veitingastaði, bari, hótel. Ég held að þú finnir okkar bjór ekki neins staðar á krana. Þetta er svolítil einokunarstaða sem þeir hafa,“ segir hún.
Ekki finnist bjór frá Ölverk í verslun ÁTVR í Hveragerði þar sem brugghúsið er.
Friðjón Hólmbertsson, framkvæmdastjóri Steindal sem selur orkudrykkinn Red Bull, talar á svipaðan hátt. Hann sagðist finna frá þrýstingi frá Vífilfelli en Ölgerðin væri orðin svo miklu stærri. Hann hafi misst helming viðskiptavina sinna á þessu ári.
„Þú keppir ekkert við þetta. Það er svo mikið í húfi. Það eru peningarnir sem tala,“ segir hann.
Hafna ávirðingum
Forsvarsmenn Ölgerðarinnar vildu ekki veita Kveik viðtal heldur vildu aðeins skriflegar spurningar. Þar höfnuðu þeir öllum ávirðingum sem fram komu í þættinum.
„Samkvæmt verklagi eru samningar sem Ölgerðin býður viðskiptavinum sínum ekki einkaréttarsamningar,“ sagði í svarinu.
Nýlega gerði Samkeppniseftirlitið húsleit hjá Ölgerðinni. Ekki hefur verið greint frá því hvers vegna.