Eigendur fasteigna í húsi í miðborg Reykjavíkur hafa beðið ósigur fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála en þeir kröfðust þess að ákvörðun byggingarfulltrúa borgarinnar um að aðhafast ekkert vegna skúrs á lóð hússins við hliðina yrði felld úr gildi. Adrei var sótt um leyfi fyrir byggingu skúrsins og eigendur síðarnefnda hússins urðu ekki við tilmælum um að leita eftir samþykki nágranna sinna fyrir skúrnum.
Hinir ósáttu eigendur eru bæði fyrirtæki og einstaklingar en í húsinu eru íbúðir, skrifstofuhúsnæði og verslun. Lögðu eigendurnir fram sameiginlega kæru vegna synjunar byggingarfulltrúa á kröfu þeirra um að beita þvingunarrúrræðum vegna byggingar geymsluskúrs á baklóð hússins við hliðina.
Í upphaflegri fyrirspurn vegna skúrsins kom fram að hann skyggði verulega á port lóðar húss hinna ósáttu eigenda. Starfsmenn borgarinnar fóru á vettvang og mældu skúrinn sem reyndist vera 6,6 fermetrar og 2,15 metra hár, þar sem hæst var en samkvæmt deiliskipulagi umrædds svæðis er heimilt að reisa smáhýsi án byggingarleyfis sem eru að hámarki 6 fermetrar að stærð. Var fyrirspurninni svarað þannig að ekki væri um að ræða verulegt frávik frá stærðarviðmiðum en hins vegar væri framkvæmdin háð samþykki eigenda aðliggjandi lóðar. Byggingarfulltrúi beindi þeim tilmælum til eigenda skúrsins að leita eftir samkomulagi við eigendur aðliggjandi lóða um staðsetningu hans, ef ætlunin væri að láta hann standa minna en 3 metra frá lóðarmörkum. Engin viðbrögð urðu við þeim tilmælum.
Samþykki
Hinir ósáttu eigendur upplýstu byggingarfulltrúa um að þeir hefðu aldrei samþykkt byggingu eða staðsetningu umrædds skúrs og væru mótfallnir því að hann stæði áfram í núverandi mynd og á viðkomandi stað. Var um leið vísað til skilmála gildandi deiliskipulags fyrir umrætt svæði sem og til byggingarreglugerðar. Væri mikilvægt að þetta yrði tekið til skoðunar við mat byggingarfulltrúa á því hvort tilefni væri til að beita þvingunarúrræðum. Auk þess að valda skuggamyndun á lóð þeirra væri skúrinn reistur þannig að hann ylli raka- og viðhaldsvandamálum á vegg þeirra húss.
Í svari byggingarfulltrúa kom fram að skúrinn uppfyllti ekki skipulagsskilmála gildandi deiliskipulags að því er varðaði stærð og áskilnað um samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóða og væri leyfisskyldur. Með tilliti til meðalhófs og þess að skúrinn uppfyllti skilyrði um lágmarksfjarlægð frá næsta húsi, til að hefta útbreiðslu elds, og þess að skúrinn raskaði ekki öryggis- og almannahagsmunum myndi byggingarfulltrúi ekki beita sér fyrir því að skúrinn yrði færður frá lóðarmörkum.
Lögðu hinir ósáttu eigendur fram kæru og bentu þar á að skúrinn uppfyllti ekki skilyrði deiliskipulags um hámarkshæð og þyrfti því byggingarleyfi, hann stæði nær lóðarmörkunum en 3 metra og því þyrfti þeirra samþykki. Þar sem þeirra lóð stæði lægra en lóð nágrannanna skyggði skúrinn á þeirra lóð. Með ákvörðun sinni hafi byggingarfulltrúi í reynd veitt ólögmætu ástandi vernd á kostnað nágranna. Rannsókn málsins hafi verið ófullnægjandi. Lögð hafi verið megináhersla á brunaöryggi og meðalhóf, en ekki tekin fullnægjandi afstaða til þeirra lagaskilyrða sem gildi um stærð smáhýsa, fjarlægð frá lóðarmörkum og skyldu til að afla samþykkis nágranna.
Árabil
Í andsvörum Reykjavíkurborgar kom fram að þótt skúrinn uppfyllti ekki að öllu leyti skilyrði undanþágu frá leyfisskyldu samkvæmt gildandi deiliskipulagi umrædds svæðis og byggingarreglugerð leiddi það ekki sjálfkrafa til beitingar þvingunarúrræða. Samkvæmt lögum um mannvirki beri byggingarfulltrúa að leggja sjálfstætt mat á hvort þörf sé á svo íþyngjandi úrræðum með hliðsjón af markmiðum mannvirkjalaga og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Við mat hans hafi verið litið til þess að frávik frá deiliskipulagi væri óverulegt, mannvirkið uppfyllti hæðarskilyrði, fjarlægð að glugga væri 5,2 metrar, brunaöryggi væri ekki skert og sambærilegt smáhýsi hafi staðið á lóðinni um árabil.
Hinir ósáttu eigendur svöruðu þessu meðal annars með þeim hætti fyrri tilvist annars mannvirkis gæti ekki ein og sér skapað heimild til að reisa nýtt mannvirki sem uppfyllti ekki gildandi skilyrði deiliskipulags og byggingarreglugerða.
Í niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála segir að í ákvörðun byggingarfulltrúa komi fram málið hafi verið skoðað með tilliti til meðalhófs og að lagt hafi verið heildstætt mat á aðstæður. Hafi það verið niðurstaða byggingarfulltrúans á þeim grundvelli að ekki yrði séð að skúrinn raskaði öryggis- og almannahagsmunum. Hann myndi því ekki beita sér fyrir því að hann yrði fjarlægður, jafnvel þótt ekki lægi fyrir samþykki eigenda aðliggjandi lóðar fyrir staðsetningunni.
Nefndin segir að færð hafi verið rök fyrir þessari ákvörðun og rökstuðningnum hafi ekki verið svo áfátt að hægt sé að fallast að fella ákvörðunina úr gildi.
Því fær skúrinn að standa þótt samkvæmt lögum og byggingarreglugerð hafi átt að sækja um leyfi fyrir byggingu hans og afla samþykkis hinna ósáttu eigenda.