Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, gaf það til kynna í Spursmálum í gær að Seðlabankinn hefði viljandi búið til atvinnuleysi til að tryggja það að kjarasamningar héldu.
Samkvæmt Þórarni sá Seðlabankinn fram á það fyrr á þessu ári að verðbólga myndi ekki lækka nógu mikið til að verðbólgumarkmið kjarasamninga héldu, en þó að Seðlabankinn gæti ekki minnkað verðbólguna gæti hann búið „til nógu mikinn slaka í þjóðarbúinu þannig að atvinnuleysi verði orðið það mikið að það verði ekki áhugi til að segja upp þessum samningum.“
Sagði Þórarinn svo: „Mér sýnist okkur hafa tekist það“
Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ, segist í samtali við RÚV vera orðlaus yfir þessum ummælum. Það sé óábyrgt að lýsa því yfir að atvinnuleysi hafi verið aukið til að þvinga verkalýðshreyfinguna til að taka ákvarðanir í samræmi við vilja Seðlabankans.
„Það er alveg með ólíkindum að maður í þessari stöðu skuli koma með svona yfirlýsingu.“