Marinó G. Njálsson ráðgjafi segir að það standist ekki skoðun að hófleg hækkun launa leiði til tæplega sex prósent verðbólgu, þegar rýnt sé í tölur frá Skattinum þá hafi kaupmáttur launa lækkað síðustu tvö ár. Í ítarlegri greiningu fer Marinó yfir skýringar Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra í þættinum Sætið á Vísi. Þar sagði Ásgeir að verðbólgan hækki alltaf þegar launin hækka.
„Ég held að það sé alveg ljóst. Ég er nú fæddur um 1970. Ég tel mig reyndar vera ungan mann en á mínu æviskeiði hafa verið gerðar margar tilraunir á Íslandi með því að hækka laun. Og það er alveg ljóst hvað gerist alltaf. Verðbólgan hækkar þegar þú hækkar launin, þetta tengist. Auðvitað er það mismunandi milli atvinnugreina hvað þær eru næmar fyrir launastiginu,“ sagði Ásgeir.
„Laun geta hækkað ef það er framleiðni og innistæða fyrir því, viðskiptakjörin hjálpa. Ef launahækkanir eru í samræmi við framleiðni og samræmi við hagvöxt og svo framvegis að þá eigum við að geta fengið hækkun launa og hækkun kaupmáttar án þess að það skapi verðbólgu. En ef þú ferð langt út fyrir það umfram framleiðni, umfram hagvaxtargetu kerfisins, þá færðu verðbólgu og það er bara margsannað mál.“
Ásgeir sagði að launahækkanir á Íslandi hafi verið í kringum sex til átta prósent í fimm ár og miklu meiri en í öðrum löndum.
„Auðvitað kemur það fram í verðbólgu og ég held við þurfum ekkert að reyna að ræða það. En það sem við myndum vilja komast á er sá staður að við værum með aðeins hóflegri launahækkanir og við gætum fengið hækkun launa án þess að það skapi verðbólgu. Þannig að við séum innan þessa þægindahrings sem allar þjóðir vilja vera, þar sem við sjáum hækkun launa leiða til samsvarandi hækkunar kaupmáttar og þá er ekki þessi verðbólga og þessir háu vextir.“
„Eitthvað annað býr að baki“
Marinó segir í greiningu sinni, sem hann birtir á Facebook, að þarna sé seðlabankastjóri að halda sig fast við að launahækkanir séu orsök verðhækkana, en ekki að verðhækkanir séu orsök launahækkana.
„Ég hef nokkrum sinnum leitað nokkuð langt aftur í umfjöllun um kjarasamninga og hef ég ekki rekist á neitt tilvik, þar sem launþegahreyfingar hafi ekki borið fyrir sig að megin krafan sé leiðrétting launa vegna rýrnunar kaupmáttar, þ.e. verið er að vinna upp undangengna verðbólgu. Jafnvel þegar skoðaðar eru kröfur forstjóra ríkisstofnana, þá er gjarnan vísað til tapaðs kaupmáttar og síðan bætt við, að tilgangurinn sé líka að gæta þess, að bilið milli launa forstjóranna og undirmann haldist óbreytt,“ segir Marinó. Kaupmátturinn tapast vegna verðbólgunnar sem verður til eftir undirritun samninga.
„Þetta er því höfrungahlaup, þar sem launþegar eru að reyna að vernda kaupmátt sinn, meðan launagreiðendur telja sig þurfa að hækka verð vöru og þjónustu. Vandamálið er hins vegar, að launakostnaður er mjög ólíkt hlutfall hjá launagreiðendum, t.d. má sjá í ársreikningum matvörukeðjanna, að launakostnaður er um 10-12% af veltu, meðan önnur fyrirtæki eru að glíma við hærra hlutfall. En hækki launataxtar "bara" um 3,5%, þá er það hækkun rekstrarkostnaðar um 0,35-0,42%. Meira að segja Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn áttar sig á því, að um 0,4% aukning rekstrarkostnaðar er ekki ástæða fyrir 5,9% verðbólgu. Eitthvað annað býr að baki.“
Bendir hann á að seðlabankastjóri sé ánægður með kjarasamningana sem nú eru í gildi sem kveða á um 3,5% launahækkanir, það sé ómögulegt að sjá að það valdi 5,9% verðbólgu:
„Það er eitthvað annað, sem þarna skiptir meira máli. Að 3,5% hækkun launa um 50% launþega valdi vel yfir 6% hækkun launavísitölu ár eftir ár er augljóslega ekki 3,5% hækkuninni að kenna. En í staðinn fyrir að greina þarna á milli, þá er farið í stríð við þá sem hafa reynt að fara varlega. Ég mun hins vegar sýna fram á, að þetta stenst enga skoðun,“ segir Marinó.
Ekki betur séð en að kaupmátturinn hafi lækkað
Beinir hann þá spjótum sínum að launavísitölunni:
„Launavísitala mælir EKKI hækkun samkvæmt kjarasamningum. Hún mælir heldur EKKI hvort launakostnaður hafi hækkað eða lækkað. Hún mælir hvort greidd laun á hverja vinnustund hefur breyst. Þannig hækkar launavísitalan ef framleiðni hefur aukist og sú framleiðniaukningin leiðir til færri vinnustunda. Hafi framleiðniaukningin leitt til fækkunar starfa, en þeir sem eftir verða halda sínu starfshlutfalli, þá breytist launavísitalan ekki. Hér skiptir því máli, að skoða heildarlaunakostnað fyrirtækja á hvern starfsmann til að mæla heildaráhrifin, en ekki hvort valdir starfsmenn hafi komið betur út launalega,“ segir hann.
„Hún hækkaði árið 2024 um að meðaltali 6,6% frá árinu áður (meðal allra 12 mánaða tekið). Ef við skoðum bara starfsmenn á almennum vinnumarkaði, þá hækkaði launavísitala þeirra að meðaltali um 6,7%. Það er um 2,8% ofan á hækkun launakostnaðar launagreiðenda þeirra!“
Segir Marinó að það sé kominn tími til að hægt sé að treysta úrvinnslu gagna sem Hagstofan safni og að Hagstofan vari við ósamræminu.
„En hvað segir Skatturinn um launahækkanir á árinu 2024? Hann tekur saman upplýsingar úr skattframtölum einstaklinga og er hægt að nálgast þær á vef Skattsins. Ég reiknaði samtölur þeirra atriða, sem falla undir launatekjur og hlunnindi, bæði fyrir 2023 og 2024. Það kemur í ljós, að þessar tekjur hækkuðu um 4,3% á milli ára, er þá miðað við launatekjur 16-67 ára.“
Árið 2024 hafi launakostnaður fyrirtækja hækkað um 2,9% frá fyrra ári, launavísistalan hækkað um 6,6%, laun samkvæmt skattaskýrslum hafi hækkað um 4,3% og verðbólgan verið 5,9%.
„Ég fæ ekki betur séð, en kaupmáttur launa hafi lækkað árið 2024 um á bilinu 1,6-3,0%. Er það þvert á orð seðlabankastjóra sem heldur því stöðugt fram, að íslenskir launþegar hafi fengið mikla kaupmáttaraukningu á hverju ári,“ segir Marinó.
„Í mínum huga er launatekjur úr skattframtölum einstaklinga og launakostnaður úr skattframtölum fyrirtækja traustustu tölurnar. Launavísitalan mælir ekki laun, hvað þá launakostnað. Hún er góð í samkvæmisleikjum, en ekki fyrir hagstjórn.“