Fréttir

Már varar við óæskilegum afleiðingum leigubremsunnar – Bendir á víti til varnaðar

Mynd
Már Wolfgang Mixa.

Már Wolfgang Mixa, hagfræðingur og lektor við Háskóla Íslands, varar við því að fyrirhuguð leigubremsa yfirvalda geti haft óæskilegar afleiðingar ef of langt verður gengið í takmörkunum á leiguverði.

Hann bendir meðal annars á reynsluna í Svíþjóð þar sem strangar reglur hafi að hans sögn dregið úr framboði leiguhúsnæðis og stuðlað að svörtum markaði.

Þetta kemur fram í frétt Morgunblaðsins í dag þar sem rætt er við Má.

Már telur mikilvægt að verja leigjendur gegn skyndilegum og miklum hækkunum, en segir jafnframt nauðsynlegt að gæta meðalhófs. Of strangar reglur geti orðið til þess að leigusalar dragi sig af markaðnum eða selji eignir sínar, sem gæti á endanum bitnað á leigjendum sjálfum.

Hann tekur þó fram að málið sé ekki einfalt og að færa megi rök bæði með og á móti slíkum aðgerðum. „Þetta er ekkert klippt og skorið,“ segir hann við Morgunblaðið og bætir við að ríkisstjórnin hefði mátt gefa sér meiri tíma og kalla eftir sjónarmiðum almennings og sérfræðinga.

Varðandi reynsluna frá Svíþjóð segir Már að strangar takmarkanir á leiguverði hafi stuðlað að skorti á leiguhúsnæði með þeim afleiðingum að margir eiga í erfiðleikum með að fá þær.

„Margir leigusalar hafa þá ákveðið að fara annaðhvort fram hjá lögum eða einfaldlega selja eignirnar á markaði. Það hefur haft neikvæð áhrif að því leytinu til að stór hluti leigjenda, vegna þessara góðu fyrirætlana, er kominn á þennan svarta markað og framboð á leiguhúsnæði hefur dregist saman,“ segir hann meðal annars við Morgunblaðið.