Fréttir

Leita að gulli og silfri skammt frá Reykjavík – Nýjar rannsóknir vekja vonir

Mynd
Borarnirnar hófust í september og búist er við niðurstöðum í nóvember. DV/KSJ

Borunum til gullleitar í Þormóðsdal er lokið í bili. Fyrirtækið Aurania Resources segir rannsóknirnar vekja vonir.

DV greindi frá því þann 9. september síðastliðinn að gulleit væri hafin í Þormóðsdal, austan við Hafravatn í Mosfellsbæ. Fyrirtækið Iceland Resources, sem er í eigu kanadíska námufyrirtækisins St. Georges Eco-Mining, er þar með rannsóknarleyfi. En félagið Aurania Resources ætlaði að fjárfesta um 620 milljónum króna í gullleitina hjá St. Georges.

Fluttur var inn kjarnabor frá Finnlandi sem gróf átta holur, 770 metra djúpar, til þess að taka sýni. Eins og greint var frá í fréttinni var búið að koma bornum fyrir og fjöldi vinnumanna á staðnum.

Nú hefur Aurania tilkynnt að borunum á þessu ári sé lokið. Bæði hafi verið leitað eftir gulli og silfri.

Jarðvegurinn lofar góðu

Í tilkynningu félagsins segir að í öllum holunum hafi fundist steinefnamyndanir sem samræmast gull- og silfursteinefnavæðingu. Boranirnar hafi verið nákvæmari en fyrri boranir á svæðinu. En meðal annars hafi verið borað á sömu stöðum og áður fyrr. Búast megi við niðurstöðum úr efnagreiningu sýna í nóvember á þessu ári, en þær séu þó háðar úrvinnslutíma rannsóknarstofunnar.

Sjá einnig:

Gullgröftur hafinn í námunda við höfuðborgarsvæðið – Stór bor fluttur inn frá Finnlandi

„Ísland býr yfir mikilli reynslu af borun eftir jarðhita (vatni og gufu) til raforkuframleiðslu og hér starfa fjölmargir verktakar á þessu sviði. Markmiðið með slíkum borunum er hins vegar yfirleitt að bora opna holu niður í jörðina, jafnvel hundruð metra, fremur en að ná upp samfelldu kjarnasýni úr berginu sem borað er í gegnum,“ segir Keith Barron, stjórnarformaður Aurania Resources í tilkynningunni.

100 prósent heimtur

Takmarkið með þessum borunum hafi verið að finna leirríkar æðar í jarðveginum. Fyrri boranir á svæðinu hafi aðeins sýnt um 50 prósenta heimtur eða minna. Það er að fínt efni hafi tapast í boruninni, einkum steinefni. Nú hafi heimturnar í borununum verið 100 prósent í flestum tilfellum.

Kemur fram að í kjarnanum hafi fundist bæði kvarts og jarðhita breksíur, það er berg sem er samsett úr hvössum og kantskornum bergbrotum sem eru steypt saman í fínni fyllingu. Þetta sé það sem búast megi við að finna í kerfum þar sem er bæði gull og silfur. Fyrri boranir hafi sýnt að gull er í æðunum.

 

Mynd
Spurningin er hvort gull og silfur sé í vinnanlegu magni. DV/KSJ