Fréttir

Kristján Ingi lögreglumaður með mikilvæg skilaboð til foreldra: „Þetta getur valdið gríðarlega miklu andlegu niðurrifi hjá börnum“

Mynd
Kristján Ingi Kristjánsson. Samsett mynd/Getty

Foreldrar eru að mörgu leyti sofandi þegar kemur að aðgengi barnaníðinga að börnum þeirra í gegnum snjallsíma, í raun sé búið að hleypa barnaníðingum inn í barnaherbergið, þetta segir Kristján Ingi Kristjánsson lögreglumaður í kynferðisbrotadeild. 

„Það er, tel ég, hættulegt að láta börn fá snjallsíma í hendurnar,“ segir hann í viðtali í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun, það á einnig við um iPada, spjaldtölvur og aðrar tölvur. 

350 brot gegn börnum á ári

Í tölfræði lögreglunnar sem var birt nýverið sést að tæplega 350 kynferðisbrot gegn börnum eru tilkynnt á ári, hafa þau ekki verið fleiri frá árinu 2021. Þá fjölgar tilkynningum um stafrænt ofbeldi og kynferðislega áreitni fjölgar mikið á milli ára, helmingur þeirra brotaþola eru börn. 

„Þetta hefur aukist í takti við þá þróun sem hefur verið í snjallsímavæðingu frá aldamótum,“ segir Kristján Ingi en hann hefur starfað í kynferðisbrotadeild frá aldamótum og hefur orðið vitni af miklum breytingum síðan þá. „Barnaníðsefni hefur orðið miklu meira og fer á milli. Við erum í raun og veru búin að hleypa barnaníðingunum inn í herbergi til barnanna okkar,“ segir hann. „Það er kominn þessi nýi samskiptamáti og það er verið að misnota þann samskiptamáta á grófan hátt. Það er verið að nýta börnin í annarlegum tilgangi.“

Með svona mál í hverri einustu viku

Í raun eru engin takmörk fyrir því hvernig barnaníðingar nálgast börnin og beita þau blekkingum, það getur átt við um samfélagsmiðla og tölvuleiki þar sem börnin kunna að halda að þau séu að tala við jafningja sína. Það eru þekkt dæmi um að börn séu kúguð til að senda myndir og jafnvel gera eitthvað við aðra. 

„Við erum með svona mál í hverri einustu viku, þar sem til dæmis er búið að kúga börn eða beita blekkingum til að senda nektarmyndir af sér. Svo eru þau beitt kúgun eða hótað að dreifa myndunum út um allt ef þau senda ekki grófara efni. Þetta er í hverri einustu viku,“ segir Kristján Ingi. Þá eru dæmi um að börn og foreldrar reyni að borga sig frá slíkum málum. 

„Við erum örugglega bara að sjá toppinn á ísjakanum, þá hluti sem eru mjög illviðráðanlegir. Þetta eru brot sem ná út fyrir landamærin og oft er ekki hægt að rekja þetta,“ segir hann. „Þetta er eins og öll önnur kynferðisbrot, þetta er falið, þetta eru falin brot og fólk segir ekki frá þessu fyrr en allt er komið í óefni, og jafnvel yfir það.“

„Þetta getur haft gríðarlega mikið andlegt niðurrif hjá börnum“

Kristján Ingi segir að fólk sé bæði hrætt og skammist sín. „Fólk er hrætt, enda fylgir brotunum gríðarleg skömm, hvort sem þú ert að vera fyrir þessu sjálfur eða einhver sem er þér nátengdur. Þá hefst einhvers konar þöggun, fólk vill ekki kalla skömm yfir alla fjölskylduna með því að gera þetta opinbert,“ segir Kristján Ingi. 

„Fólk reynir oft að leysa úr þessu sjálft, sem er í sjálfu sér gott, en aðalmálið er að fræða börnin um hættuna á netinu og gleyma því ekki að forvarnir í svona málum byrja heima. Það sé á ábyrgð foreldra en ekki einhverra yfirvalda eða stofnana að fræða börnin.“

Kristján Ingi segir að foreldrum að fara varlega með allar myndbirtingar af börnunum sínum á samfélagsmiðlum. „Gervigreindin gerir þeim kleift að skeyta saman myndum ótakmarkað,“ segir hann. Það geti gerst að mynd af barni sem búið er að eiga við fari á flug úti í heimili. „Þetta getur valdið gríðarlega miklu andlegu niðurrifi hjá börnum.“

Mjög erfið mál að leysa

Það er erfitt að rannsaka svona mál, þau geta verið illrekjanleg og nái oft út fyrir landsteinana. „Það eru ekki allir netþjónar sem eru tilbúnir að gefa lögreglunni upplýsingar, það eru alls kyns reglur í því. Þetta er mjög erfitt í úrvinnslu og tímafrek mál,“ segir hann. Það gangi misvel að leysa svona mál og hafa hendur í hári níðinganna. „Almennt eru þetta mjög erfið mál, það er erfið sönnunarbyrgði, rekja mál milli landa, gervigreindin notuð til að blekkja fólk. Fólk einhversstaðar úti í heimi getur sent börnum íslensk skilaboð, fyrir utan að allir tala meira og minna ensku.“

Dæmi eru um einstaklinga á aldrinum 15 til 18 ára sem hafi borgað alla sumarpeningana sína til að koma í veg fyrir dreifingu á myndum.  Lögreglan hefur orðið vör við að þetta sé skipulögð brotastarfsemi. „Að ná myndefni af börnum, oft í fjárhagslegum tilgangi. Ég er kominn með mynd af þér. Oft ungt fólk sem telur sig vera að tala við einhvern af hinu kyninu, eitthvað svona spennandi samband, fer að senda nektarmyndir af sér. Svo fer bara fjárkúgun í gang. Ef þú greiðir ekki svona mikla upphæð þá sendi ég myndirnar til foreldra þinna, allra þinna vina og allra í fótboltaliðinu.“