Veðurviðvaranir eru í gildi um allt land á morgun. Lögreglan í Vestmannaeyjum varar íbúa við því að spáð sé veðrið verði verst í bænum í fyrramálið um það leyti sem að skólastarf í bænum hefst og því sé best fyrir íbúa að sýna aðgát.
Gul viðvörun er í gildi fyrir Suðurland og þar með talið Vestmannaeyjar frá klukkan 5 til 11 og í viðvöruninni segir að hvassast verði syðst. Samkvæmt vef veðurstofunnar er spáð 28 metrum á sekúndu í meðalvind á Stórhöfða klukkan 8 í fyrramálið.
Í tilkynningu frá lögreglunni í Vestmannaeyjum segir að búist sé við mjög hvössum vindi og snörpum vindhviðum sem geti farið vel yfir 40 metra á sekúndu.
Sérstök aðgát sé nauðsynleg í fyrramálið þegar skólastarf hefjist. Samkvæmt veðurspá sé búist við að veðrið verði hvað verst um það leyti sem börn og ungmenni séu á leið til skóla. Foreldrar og forráðamenn eru beðnir að fylgjast vel með aðstæðum, fara varlega á leið til skóla og vinnu og gæta sérstaklega að börnum og öðrum vegfarendum.
„Með því að sýna aðgát og tryggja lausamuni getum við öll hjálpast að við að draga úr hættu á tjóni og slysum,“ segir að lokum í tilkynningunni.