Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir það samsæriskenningu að með því að fækka varaforsetum ASÍ þá sé verið að jaðarsetja sjónarmið hópa innan sambandsins líkt og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur haldið fram. Líkt og fjallað var um í morgun telur Sólveig Anna að Halla ætli sér að sölsa undir sig ASÍ á þingi sambandsins sem hefst á morgun.
Sjá einnig: Segir að svona ætli Halla og VR að taka ASÍ yfir
Í ítarlegri færslu nefnir Halla ekki Sólveigu Önnu á nafn en segir að vegna umræðunnar um fjölda varaforseta þá vilji hún leggja orð í belg. Í raun hafi varaforseti það eina hlutverk að vera varamaður fyrir forsetann.
„Í gegnum söguna hefur einn varaforseti dugað sambandinu ágætlega en sem viðleitni til að leysa úr ágreiningi um titla og völd hefur þeim verið fjölgað og hafa sl. sex ár verið þrír. Hugmyndin með því var að þeir kæmu frá ólíkum starfsgreinum (verslunarfólk, verkafólk, iðnaðarmenn) og mynduðu einhvers konar forsetateymi sem fundaði sérstaklega og legði línurnar,“ segir Halla.
„En lögum ASÍ samkvæmt á ábyrgðin á daglegu starfi sambandsins heima í miðstjórn, ekki í litlu teymi varaforseta. Í miðstjórn koma saman fulltrúar allra landssambandanna sem mynda ASÍ og félaga með beina aðild. Þess vegna er ótrúlega undarlegt að lesa samsæriskenningar um að fækkun varaforseta gæti leitt til þess að sjónarmið einhverra hópa innan ASÍ verði jaðarsett. Þvert á móti þá er hugmyndin um lítið forsetateymi ólýðræðisleg og til þess fallin að fækka þeim röddum sem nauðsynlegt er að hafi áhrif á alla stefnumótun og daglegan rekstur ASÍ. Að vísu hefur röddum verkafólks fækkað innan miðstjórnar eftir að Efling gekk úr SGS, en svo virðist sem félagið þiggi eingöngu eitt sæti af tveimur mögulegum við borðið og leggur ekki til neina varamenn. Hvers vegna svo er veit ég ekki.“
Þá sé starf varaforseta í raun tveir fjarfundir á mánuði og að fara yfir dagskrá miðstjórnar áður en hún sé send út.
„Fundirnir taka iðulega um fimmtán mínútur en fyrir starfið eru engu að síður greiddar í ríflega 240 þúsund krónur á mánuði. (Hjá VR hefur stjórn tekið ákvörðun um að slíkar greiðslur skuli teljast hluti af launakjörum formanns og eru dregnar frá heildarlaunum).“
Sjálf ætli hún að gefa kost á sér til embættis fyrsta varaforseta en greidd verða atkvæði um það á fimmtudag.
„Hvað sjálfa mig varðar þá hef ég gefið kost á mér til embættis fyrsta varaforseta en það fer hins vegar allt eftir afdrifum lagabreytinga um fjölda varaforseta og niðurstöðu í kosningu til forseta hvort ég læt slag standa í þeim efnum. Ég er til dæmis þeirrar skoðunar að komi forseti úr röðum VR-inga, líkt og annar frambjóðandinn gerir, og tillaga um einn varaforseta verður samþykkt sé betra að viðkomandi komi úr röðum annarra hópa sambandsins. Þá mun ég draga framboð mitt til baka.“