Fréttir

Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu – Biðlað til ferðaþjónustunnar um að láta ferðamenn vita

Mynd
mynd/Vilhelm

Fyrsti óveðurshvellur vetrarins er í uppsiglingu og hefur Veðurstofan nú gefið út gula viðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið, þá er appelsínugul viðvörun á Norðurlandi vestra og á Ströndum. 

Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir við DV að það sé skynsamlegt fyrir fólk sem þarf að ferðast milli landshluta að flýta eða seinka för sinni. Þá biðlar hann til ferðaþjónustuaðila og annarra sem hýsa ferðamenn í nótt að láta það vita í kvöld hvernig staðan verður. 

Á höfuðborgarsvæðinu er spáð austan 13-20 m/s og snarpar vindhviður, einkum í efri byggðum frá klukkan 6 í fyrramálið til klukkan 11. Fólk er hvatt til að koma lausamunum í skjól.

Síðdegis á morgun lægir fyrir sunnan og á höfuðborgarsvæðinu en þá hefst stórhríð á Norðurlandi vestra og á Ströndum. „Talsverð eða mikil snjókoma eða slydda með lélegu skyggni og snjó á vegum. Ekkert ferðaveður. Snarpar vindhviður og lausamunir geta fokið,“ segir í veðurspánni fyrir Vestfirði frá kl. 17 á morgun, 

Í tilkynningu frá Vegagerðinni eru vegfarendur varaðir við mjög hvössum vindi undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum frá því snemma í fyrramálið og til um kl. 9. 

Í athugasemdum veðurfræðings segir:

„Mjög djúp og kröpp lægð nálgast landið úr suðri í nótt og skil frá henni ganga inn á landið í fyrramálið með austan stormi og talsverðri úrkomu. Möguleiki er á eldingum í skilunum. Síðdegis á morgun gengur miðja lægðarinnar inn á land og þá dregur úr vindi og úrkomu sunnan- og austanlands, en hins vegar gengur þá í norðan stórhríð á norðvestanverðu landinu með talsverðri eða mikilli slyddu eða snjókomu.“