Fréttir

Félagslegar íbúðir nýttar til afbrota og börnin misnotuð kynferðislega

Mynd
Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður. Skjáskot Ein pæling.

Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður hefur greint frá kerfisbundnu ofbeldi og misnotkun kvenna í viðkvæmri stöðu, t.d. með andlegar skerðingar, af hálfu erlendra karlmanna sem hagnýta sér þær í þeirri viðleitni að afla sér landvistarleyfis hér á landi eða fjárhagslegs ávinnings. 

Grein sem hann birti um málið fyrir nokkrum vikum vakti mikla athygli og þar segir meðal annars: 

„Konurnar eru ekki aðeins beittar kynferðislegu og líkamlegu ofbeldi, heldur eru þær notaðar fjárhagslega. Þær eru neyddar til þess að taka lán, láta af hendi fjármuni eða afhenda húsnæði sem þær hafa fengið í gegnum félagslega kerfið, svo hægt sé að nota það í annarlegum tilgangi.

Skelfilegast er þó þegar þessar konur eru þvingaðar til þess að verða óléttar í þeirri von og trú gerenda að barneignir muni auka möguleika þeirra á dvalarleyfi og tryggja þeim hærri bótagreiðslur frá hinu opinbera.“

Hefur fengið mörg mál inn á sitt borð

Sævar Þór fer nánar yfir þennan ískyggilega vanda í viðtali við Hlaðvarpið „Ein pæling“. Hann segir yfirvöld hér á landi verða að átta sig á þessum óhugnanlega veruleika og bregðast við. 

Hann segist fyrst hafa kynnst þessu á síðasta ári er hann fór að fá mörg mál af þessu tagi inn á sitt borð. Þar höfðu aðstandendur kvennanna og konurnar sjálfar samband, í upphafi vegna barnaverndarmála, sem hafa komið upp, eða vegna þess að þær voru hræddar um líf sitt og óskuðu eftir aðstoð lögmanns við að koma af stað skilnaði. 

Sævar segir: 

„Þetta eru mismunandi mál. Grófasta málið er þess eðlis að þar er kona sem áður hefur verið með manni af erlendi bergi. Oft hefur verið fjallað um það að þetta sé að einhverju leyti ekki bara tengt við einhverja útlendinga og það er auðvitað alveg rétt. Það eru ofbeldismál inni á heimilum óháð því hvort þú sért af erlendu bergi eða Íslendingur eða hvað eina, það er bara þekkt. En það er kannski orðin svolítil nýlunda að við erum farin að eiga við mál þar sem menn, oftast menn, eru að setja sig í samband við konur sem eiga við einhvers konar skerðingu að stríða, í þeim tilgangi að tryggja sér landvistarleyfi. Þetta er þekkt hér, þekkt erlendis, þekkt alls staðar í kringum okkur, og það er einhvers konar barnaskapur, einfeldni í okkur Íslendingum í kringum þessa umræðu, að halda að svona geti ekki gerst, bara af því við búum á þessari eyju. 

Í því tilviki sem ég er að vísa til og er alvarlegast, þar sem börn eiga í hlut, þar eru ekki einhverjar grunsemdir heldur staðfest að börnin eru ekki bara vanrækt heldur líka misnotuð kynferðislega. Og barnaverndarkerfið, einhverra hluta vegna, grípur ekki nógu hratt inn í þetta mál, og í ofanálag er ofbeldi gagnvart viðkomandi konu algert, og ekki bara frá eiginmanni heldur frá mönnum sem tengjast honum.“

Afbrot stunduð í félagslegu leiguhúsnæði

Sævar Þór bendir á að konurnar búi í félagslegu leiguhúsnæði og stundum nýti mennirnir það undir brotastarfsemi. Þegar lögregla grípi þar inn í skorti á að hugað sé að stöðu kvennanna og barnanna sem búa við þessar aðstæður: 

„Ræktun, sala á fíkniefnum eða vörslu á stolnum hlutum, eða þýfi. Lögreglan hefur oftar en ekki komið við sögu í þessum málum, þegar tengist þýfi eða sölu á fíkniefnum, en það er aldrei spáð í: Þessi maður sem er hér, af hverju er hann hérna? Hvernig er aðstaða þessarar konu, eða kvenna, eða barna í þessu umhverfi? Það er bara sérkapítuli út af fyrir sig og eitthvað sem barnavernd þarf að taka á. Og lögreglan, sem betur fer er hún farin að beita sér meira í þessu. En þetta er ekki bara eitthvert eitt tilvik, þetta eru mörg tilvik.“ 

Beittar miklum þrýstingi

Sævar Þór segir að þær konur sem reyna að losna úr þessum samböndum séu oft beittar miklum þrýstingi:

„Það gengur m.a.s. svo langt í einu tilviki þegar konan sækist eftir því að skilja við viðkomandi, þá er hópur af vinum sem koma frá sama landi sem setja sig í samband við hana til að telja henni hughvarf, að skilja ekki.

Þær eru undir miklum hótunum, ekki bara ofbeldi heldur lífláti. Í einu tilvikinu var það þannig að það var gefið í skyn sterklega að ef einhver myndi beita sér í því að reyna að koma í veg fyrir að viðkomandi væri inni á heimili konunnar þá yrði sá bara drepinn. Og þetta er ekki eitthvert eitt tilvik, heldur mörg tilvik.“ 

Skotmark manns sem var að koma til landsins

Sævar segir að setið sé um þessar konur og kemur með þessa frásögn sem dæmi: 

„Setið hefur verið um þessar konur. Í einu tilviki hafði kona skilið við mann eftir svona samband. Sá aðili hafði þröngvað henni eða pressað mikið á að hún myndi eiga börn, sem gerðist. Eftir langvarandi ofbeldi og erfiðleika skilur hún við hann. Þá er einhver maður sem setur sig í samband við hana eftir þennan skilnað og óskar eftir að hitta hana, jafnvel fara á stefnumót við hana. Kemur síðan í ljós að þetta er vinur mannsins sem hún hafði skilið við og er að koma til landsins. Og í hvaða tilgangi er það? Það er bara í einum tilgangi, að reyna að tryggja sína stöðu hér á landi, með landvistarleyfi.“ 

Viðtalið er í spilaranum hér fyrir neðan.