Fréttir

Fyrsti alvöru hvellur vetrarins framundan – Þetta þurfa landsmenn að hafa í huga

Mynd
Fréttablaðið/Anton Brink

Fyrsti óveðurshvellur vetrarins er í uppsiglingu en eins og kunnugt er hefur Veðurstofa Íslands gefið út gular og appelsínugular viðvaranir fyrir stóran hluta landsins á morgun.

Búast má við stormi, mikilli úrkomu og jafnvel stórhríð þegar mjög djúp og kröpp lægð gengur yfir landið. Verst verður veðrið á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra þar sem ekkert ferðaveður verður annað kvöld og fram á nótt.

Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands kemur fram að veðrið verði með rólegra móti í dag. Víða verður hæg suðlæg eða breytileg átt og skúrir, en hiti verður á bilinu 5 til 10 stig.

Á morgun verður hins vegar snörp breyting á veðrinu þegar öflug lægð fer yfir landið. Strax í fyrramálið má búast við austan- og norðaustanstormi með talsverðri eða mikilli rigningu á láglendi í flestum landshlutum. Til fjalla verður slydda eða snjókoma, einkum norðanlands.

Gular viðvaranir taka gildi á Suður- og Suðausturlandi klukkan sex í fyrramálið og síðar um morguninn víðar á landinu. Víða er spáð 15 til 25 metrum á sekúndu og snörpum vindhviðum. Veðurstofan varar við varasömu ferðaveðri og því að lausamunir geti fokið.

Svikalogn fyrir austan

Veðrið verður hvað verst á Vestfjörðum og á Ströndum og Norðurlandi vestra þegar líður á daginn. Þar taka appelsínugular viðvaranir gildi klukkan 17 og 20 og standa fram á aðfaranótt fimmtudags.

Spáð er norðanstórhríð, 18 til 25 metrum á sekúndu, og talsverðri eða mikilli snjókomu eða slyddu. Skyggni verður lélegt og snjór getur safnast á vegi. Veðurstofan tekur sérstaklega fram að ekkert ferðaveður verði á þessum slóðum.

Á Breiðafirði er einnig gert ráð fyrir hríð annað kvöld og fram yfir miðnætti. Á miðhálendinu verður sömuleiðis ekkert ferðaveður, bæði fyrripart miðvikudags og aftur um kvöldið.

Veðurfræðingur bendir á að þegar lægðarmiðjan gengur inn á austurhluta landsins síðdegis á morgun verði þar svokallað svikalogn, þar sem vindur verður lítill um tíma. Vestan lægðarmiðjunnar verður hins vegar öflugur norðanvindstrengur.

Með norðanáttinni berst kaldara loft yfir landið og að sögn veðurfræðings má gera ráð fyrir að snjólínan færist niður undir sjávarmál á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra annað kvöld.

Óveðrið gengur hratt yfir

Veðurfræðingur Veðurstofunnar bendir á að spár hafi lítið breyst frá því í gær og séu nokkuð samstíga um þróun lægðarinnar. Þó fylgi ört dýpkandi og hraðfara lægðum af þessu tagi jafnan töluverð óvissa og því geti viðvaranir tekið breytingum.

Samkvæmt núverandi spám verður lægðin komin norðaustur fyrir land á fimmtudagsmorgun. Þá verður enn hvöss norðvestanátt með snjókomu á Norður- og Austurlandi.

Eftir hádegi á fimmtudag ætti óveðrið hins vegar að vera að mestu gengið niður og við taki kalt en skaplegra veður um land allt.