Oleksandr Syrskyi, fyrrverandi yfirhershöfðingi Úkraínu, segir úkraínska hernum hafa tekist að stöðva framrás Rússa og koma á stöðugleika á víglínunni. Hann segir gríðarlegt mannfall hafa dregið verulega úr sóknargetu Rússa og varar Evrópuríki við því að treysta á að stríðið haldist innan landamæra Úkraínu.
Þetta kemur fram í viðtali Syrskyi við BBC, því fyrsta síðan honum var vikið úr embætti í sumar eftir harðar deilur innan úkraínsku ríkisstjórnarinnar.
Syrskyi segir að heildarmannfall Rússa í stríðinu sé sexfalt meira en Úkraínumanna. Þegar aðeins sé horft til fallinna hermanna sé munurinn enn meiri.
„Ef aðeins er miðað við fallna hermenn er munurinn allt að ellefufaldur,“ segir hann.
Í umfjöllun BBC kemur fram að ekki sé hægt að staðfesta þessar tölur með óyggjandi hætti enda birti hvorki Rússar né Úkraínumenn opinberar heildartölur um fallna hermenn.
Samkvæmt mati breskra leyniþjónustuyfirvalda hafa um 500 þúsund rússneskir hermenn fallið frá upphafi innrásarinnar árið 2022. Bandaríska hugveitan Center for Strategic and International Studies hefur áætlað að allt að 150 þúsund úkraínskir hermenn hafi fallið frá upphafi innrásarinnar og fram til júní á þessu ári.
Segir Rússa hafa misst sóknargetuna
Syrskyi segir að á fyrstu sex mánuðum ársins hafi Rússar aðeins náð að bæta við sig 61 ferkílómetra landsvæði þegar tekið er tillit til þess lands sem þeir misstu á sama tíma. „Þetta er vísbending um að stöðugleiki hafi náðst á víglínunni,“ segir hann.
Bandaríska hugveitan Institute for the Study of War hefur einnig bent á að hægst hafi verulega á sókn Rússa. Samkvæmt nýlegri greiningu hennar misstu Rússar meira landsvæði en þeir náðu á sitt vald í september.
Syrskyi segir tækniframfarir, einkum aukna notkun dróna, hafa skipt sköpum. Hann segir að rekja megi um 80 prósent af mannfalli og öðru hernaðartjóni Rússa til drónaárása Úkraínumanna.
Svarar gagnrýni eftir brottreksturinn
Syrskyi var skipaður yfirhershöfðingi árið 2024 en var vikið úr embætti í sumar eftir deilur við þáverandi varnarmálaráðherra, Mykhailo Fedorov.
Hann hafnar því að hafa verið of fastheldinn á gamaldags hernaðaraðferðir og segir þvert á móti að úkraínski herinn hafi tekið stórstígum framförum í notkun hátæknivopna undir sinni stjórn.
Í viðtalinu svarar hann einnig gagnrýni hermanna sem hafa sakað yfirstjórnina um að skipa þeim að halda stöðum sínum jafnvel þegar yfirvofandi hætta var á að rússneskar hersveitir umkringdu þá.
Syrskyi viðurkennir að slíkar aðstæður hafi komið upp en bendir á að Úkraína hafi þurft að berjast gegn mun fjölmennari og betur búnum her.
„Látið af öllum blekkingum“
Fyrrverandi yfirhershöfðinginn beinir jafnframt skýrum skilaboðum til Evrópuríkja sem telja ólíklegt að Rússar muni láta til skarar skríða utan Úkraínu.
Hann hvetur þau til að hefja undirbúning fyrir hugsanlegt stríð og „láta af öllum blekkingum“ um að það muni ekki berast til þeirra.
Syrskyi telur að hernaður framtíðarinnar muni í síauknum mæli byggjast á drónum, vélmennum og gervigreind. Þrátt fyrir tækniframfarirnar verði það þó áfram mannfólkið sem ráði úrslitum á vígvellinum.
„Hlutverk mannsins verður áfram afgerandi á vígvellinum, því það þarf fólk til að stjórna þessum kerfum,“ segir hann.