Fréttir

Forstjóri Húsasmiðjunnar vill að ríkisstjórnin snúi við blaðinu – Leggur til róttæka breytingu

Mynd
Birna Ósk Einarsdóttir, forstjóri Húsasmiðjunnar.

Birna Ósk Einarsdóttir, forstjóri Húsasmiðjunnar, hvetur ríkisstjórnina til að endurskoða áform um að lækka endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna viðhalds og endurbóta á íbúðarhúsnæði. Þvert á móti ætti að hækka endurgreiðsluna tímabundið í 100 prósent.

Þetta kemur fram í aðsendri grein Birnu á vef Vísis þar sem hún bendir á að verulega hafi hægt á nýbyggingum hér á landi og horfur séu á að verkefnum í byggingariðnaði fækki á næstu misserum.

Höfum beitt þessum úrræðum áður

Hún bendir á að samkvæmt septembertalningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hafi framkvæmdir við 772 íbúðir hafist á síðustu sex mánuðum. Það er 56 prósenta samdráttur miðað við sex mánuðina þar á undan og 48 prósenta samdráttur frá sama tímabili í fyrra.

Á sama tíma sé víða mikil þörf fyrir viðhald og endurbætur á eldra húsnæði og telur Birna að nýta megi samdráttinn í nýbyggingum til að beina auknum kröftum í slík verkefni.

Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er gert ráð fyrir að endurgreiðsluhlutfall virðisaukaskatts vegna vinnu við íbúðarhúsnæði lækki úr 35 prósentum í 20 prósent. Birna leggur hins vegar til að hlutfallið verði hækkað í 100 prósent í 18 til 24 mánuði.

Hún bendir á að sambærilegu úrræði hafi verið beitt eftir fjármálahrunið árið 2009 og aftur í heimsfaraldrinum árið 2020.

Að hennar mati gæti slík aðgerð bæði örvað framkvæmdir og dregið úr svartri atvinnustarfsemi, enda myndi verðmunur á uppgefinni og óskráðri vinnu minnka.

Hún viðurkennir að aðgerðin hefði kostnað í för með sér og rétt sé að meta áhrif hennar vandlega. Engu að síður telur hún að hluti kostnaðarins gæti skilað sér til baka með auknum skatttekjum og meiri atvinnu.

„Við höfum áður nýtt þetta úrræði þegar aðstæður hafa kallað á það og nú er lag að gera það aftur,“ segir forstjórinn í lok greinarinnar.

Gæti munað tæplega 200 þúsund krónum

Til að átta sig á því hvað breytingarnar gætu þýtt fyrir heimilin má taka einfalt reikningsdæmi, þar sem miðað er við að allur vinnukostnaður uppfylli skilyrði fyrir endurgreiðslu virðisaukaskatts.

Ef vinnukostnaður við framkvæmdir á heimili er ein milljón króna án virðisaukaskatts bætast 240 þúsund krónur við reikninginn í formi virðisaukaskatts. Heildarreikningurinn hljóðar því upp á 1.240.000 krónur.

Samkvæmt núgildandi reglum fást 35 prósent virðisaukaskattsins endurgreidd, eða 84 þúsund krónur. Endanlegur kostnaður heimilisins verður því 1.156.000 krónur.

Samkvæmt tillögu ríkisstjórnarinnar myndi endurgreiðsluhlutfallið lækka í 20 prósent. Þá fengi heimilið aðeins 48 þúsund krónur endurgreiddar og endanlegur kostnaður yrði 1.192.000 krónur.

Samkvæmt tillögu Birnu yrði endurgreiðsluhlutfallið hins vegar hækkað tímabundið í 100 prósent. Þá fengi heimilið allan virðisaukaskattinn, 240 þúsund krónur, endurgreiddan og endanlegur kostnaður yrði ein milljón króna.