Fréttir

Finnbjörn lætur Höllu og Sólveigu Önnu heyra það undir rós

Mynd
Finnbjörn Hermannsson forseti ASÍ.

Finnbjörn Hermannsson forseti ASÍ fagnar niðurstöðu nýliðinna viðræðna um forsendur kjarasamninga sem hann segir mikilvæga niðurstöðu fyrir launafólk. Svo virðist sem að Finnbjörn sé með óbein skilaboð til formanna VR og Eflingar án þess þó að nefna nein nöfn. Segir Finnbjörn að enginn einn sé stærri en sjálf verkalýsðhreyfingin.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Efllingar og Halla Gunnarsdóttir formaður VR, tveggja fjölmennustu verkalýðsfélaga landsins, hafa deilt opinberlega eftir að niðurstaða viðræðnanna lá fyrir. Hefur Sólveig Anna meðal annars sakað Höllu um að setja á svið leikrit með framgöngu sinni og gagnrýndi hana nú síðast í dag fyrir meintar fyrirætlanir um yfirtöku á ASÍ.

Sjá einnig: Segir að svona ætli Halla og VR að taka ASÍ yfir

Þótt Finnbjörn nefni þær tvær ekki á nafn í grein sinni á Vísi um viðræðurnar þá virðist óhjákvæmilegt að komast þeirri niðurstöðu að forseti ASÍ sé að vísa til þeirra tveggja þegar hann skrifar:

„Árangurinn er hins vegar ekki verk eins manns eða fárra einstaklinga. Það á almennt við um verkalýðsbaráttu. Enginn forystumaður í verkalýðshreyfingunni er stærri en félagið eða sambandið sem hann fer fyrir. Varanlegur árangur byggist á samstöðu innan hreyfingarinnar. Þess vegna er hæpið að meta árangur verkalýðshreyfingarinnar fyrst og fremst út frá framgöngu eða sýnileika einstaklinga. Rétti mælikvarðinn er hvaða raunverulegu breytingar tekst að knýja fram í kjörum, réttindum og lífsskilyrðum fólks.“

„Þessi niðurstaða er afrakstur víðtæks samráðs innan verkalýðshreyfingarinnar. Formenn og forystufólk aðildarfélaganna hafa lagt sitt af mörkum og starfsfólk Alþýðusambandsins hefur lagt gríðarlega vinnu í greiningar, undirbúning, útfærslur og viðræður. Fyrir þá fagmennsku og seiglu vil ég færa þeim sérstakar þakkir. Við eigum að gleðjast yfir sigrunum og segja frá þeim. Ekki til að hefja einstaklinga á stall heldur vegna þess að árangur skiptir máli. Hann sýnir félagsmönnum hvað sameiginlegt afl þeirra getur áorkað og minnir okkur á hvers vegna sterk verkalýðshreyfing skiptir máli.“