Brasilísk kona skar typpið af eiginmanni sínum eftir að hún komst að því að hann hafði verið henni ótrúr. Hjónin skildu og hann fékk fébætur. Nú ætlar hann að nota fébæturnar til þess að giftast henni aftur.
Brasilíska blaðið O Globo greinir frá þessu.
Kona að nafni Daiane do Santos Farias frá borginni Atibaia, nálægt Sao Paulo skar typpið af eiginmanni sínum Gilberto Nogueira de Oliveira eftir að hún komst að því að hann hefði verið henni ótrúr. Það er á afmælinu hennar árið 2023 þegar hann svaf hjá frænku sinni.
Sturtaði limnum niður klósettið
Árásin var útpæld. Daiane tældi hann til kynlífs og batt hendurnar á honum fastar við rúmgaflinn með nærbuxunum sínum. Dró hún þá fram kuta og skar liminn af honum. Því næst sturtaði hún limnum niður klósettið. Til að bæta gráu ofan á svart kastaði hún bíllyklunum út um gluggann til að hann gæti ekki sótt hjálp.
Gerði hún sér fullkomlega grein fyrir því að hún væri að fremja alvarlegan glæp. Gaf hún sig fram við lögreglu sama kvöld og játaði brot sitt.
Hlaut Daiane fjögurra ára og átta mánaða fangelsisdóm í kvennafangelsinu Mogi das Cruzes. En henni var hins vegar sleppt á reynslulausn í nóvember á síðasta ári.
Heilbrigðisstarfsfólkið dreifði myndum
Gilberto var lagður inn á Santa Casa Misericordia de Atibaia spítalann eftir árásina. En þar kom upp annað sakamál. Það er að starfsfólk spítalans hafði dreift myndum af hræðilegu sári hans á samfélagsmiðlunum X og Whatsapp.
Gilberto lögsótti spítalann og fékk um 20 þúsund brasilísk reöl í fébætur fyrir misgjörðir starfsfólksins. En það jafngildir í kringum 500 þúsund íslenskum krónum.
Fyrirgefning
Ætla mætti að Gilberto og Daiane myndu ekki vilja vita af hvort öðru eftir þetta. En því er nú öðru nær. Vissulega skildu þau eftir þetta en nú eru þau að fara að giftast aftur.
Gilberto sagðist sakna Daiane, hann væri búinn að fyrirgefa henni og vildi lappa upp á samband þeirra. Daiane var einnig viljug til þess að taka við Gilberto á ný. Byrjuðu þau að skrifast á þegar hún var í fangelsinu og Gilberto sagðist sjá eftir því að hafa sofið hjá frænku sinni.
Notar bæturnar til að borga fyrir brúðkaup
Hluta fébótanna frá spítalanum ætlar Gilberto að nota til þess að halda giftingarveislu. Hluta ætlar hann að nota til þess að greiða inn á typpa ígræðslu. En hann vonast til þess að fá aðstoð ríkisins til að greiða restina. Aðgerðir sem þessar eru ekki algengar í Brasilíu.
„Þessar bætur eru mjög lágar. Ég vill meira,“ segir Gilberto, sem hafði krafist 100 þúsund reala frá spítalanum. Það er um 2,5 milljóna króna. „Mig vantar peninga því að ég vill líka gera upp húsið mitt.“