Fréttir

Eigandi brugghúss segir nær ómögulegt að koma vörum á markað vegna Ölgerðarinnar

Mynd

Samkeppniseftirlitið gerði síðastliðinn föstudag húsleit í höfuðstöðvum Beru hf, móðurfélags Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar ehf, vegna gruns um misnotkun á markaðsráðandi stöðu. 

Sjá einnig: Þess vegna fór Samkeppniseftirlitið í húsleit hjá Ölgerðinni í morgun

Fréttaskýringaþátturinn Kveikur hefur undanfarið rannsakað viðskiptahætti Ölgerðarinnar en þátturinn er á dagskrá RÚV í kvöld kl. 20.15. 

Í þættinum er rætt við Árna Hafstað, eiganda Gæðings brugghús, en hann segir að vegna viðskiptaháttar Ölgerðarinnar sé nær ómögulegt að koma vörum á markað. RÚV hefur þetta eftir Árna: 

„Ég hef oft rekið mig á það að þegar ég fer og reyni að selja mína vöru á bari eða veitingastaði að veitingamanninum þykir varan spennandi. En svo þegar við kannski hittumst daginn eftir þá er eins og að fæturnir hafi kólnað hjá veitingamanninum og hann hefur farið að skoða sína stöðu. Og áttar sig á því að hann er með samning við einhvern aðila sem hann er að versla við. Og í samningnum eru svo ákvæði sem hindra aðgengi annarra að þessum markaði eða þessum bar.“