Fréttir

Dekkið sprakk en bílaleigan vildi ekki borga – „Það var ekkert varadekk og enginn tjakkur í bílnum“

Mynd
Ferðamennirnir kærðu og biðu í ár. Þeir fengu loksins borgað.

Erlendir ferðamenn á camper bíl lentu í því á síðasta ári að dekkið sprakk við Dettifoss. Bílaleigan neitaði hins vegar að borga þrátt fyrir að ekkert varadekk væri í bílnum og engin tjakkur. Ferðamennirnir fengu þó sitt á endanum.

Erlendur ferðamaður greinir frá þessu á samfélagsmiðlinum Reddit en málið var einnig tekið fyrir hjá Kærunefnd vöru og þjónustukaupa.

Ferðamennirnir leigðu camper bíl hjá íslenskri bílaleigu og keyrðu um landið frá 20. september til 2. október á síðasta ári. Snemma í ferðinni, þann 24. september, kom hins vegar babb í bátinn þegar dekk sprakk nálægt Dettifossi í Suður Þingeyjarsýslu.

„Það var ekkert varadekk og enginn tjakkur í bílnum, svo að við gátum ekki skipt sjálf um dekkið,“ segir ferðamaðurinn. „Við þurftum að hringja á vegahjálp og fara með bílinn á verkstæði.“

Var þetta töluverður kostnaður fyrir ferðamennina, ófyrirséður kostnaður. Dekkið kostaði 48.990 krónur og þjónustan 87.000 krónur. Samanlagt 135.990 krónur.

Lofuðu að borga en neituðu svo

Ferðamaðurinn segist hafa haft samband við bílaleiguna í gegnum samfélagsmiðlilinn Whatsapp og fengið að vita að þeir myndu endurgreiða þetta. Það eina sem ferðamennirnir þyrftu að gera væri að halda upp á kvittanir.

Sjá einnig:

Bílaleiga rukkaði viðskiptavin um rúma hálfa milljón vegna smávægilegrar dældar

„Seinna neituðu þeir hins vegar að borga,“ segir hann. „Línan þeirra væri sú að hjólbarðakostnaður myndi lenda á leigjanda.“

Ferðamönnunum fannst þetta heldur súrt og létu ekki þar við sitja heldur fóru með málið lengra. Í nóvember sendu þeir inn kæru til Kærunefndar vöru og þjónustukaupa, borguðu 5 þúsund krónur fyrir og biðu.

Löng bið

Biðin var löng en hún borgaði sig loksins. Þann 8. september kom úrskurður þeim í hag.

Kom fram að í samningnum hafi aðeins staðið að sprungin dekk séu ekki inni í vegaaðstoð. En ekki að leigjandinn þurfi að borga sama hvað. Bílaleigan hefði þurft að sýna fram á að ferðamennirnir hefðu valdið sprungna dekkinu, svo sem með kæruleysislegum akstri, en svo var ekki. Þá var bent á að bílaleigan hafði lofað endurgreiðslu í samskiptunum á Whatsapp. Kannski það sem skipti mestu hins var það að það hlaust mikill kostnaður við að ekki væri neitt varadekk eða tjakkur til staðar í bílnum.

„Eftir úrskurðinn hafði bílaleigan 30 daga til að áfrýja annars væri þetta bindandi. Þeir borguðu 6. Október, um fjórum vikum seinna. Þetta var endurgreitt á greiðslukort vinar míns sem borgaði okkur,“ segir hann.