Fréttir

Ævintýralegur lögmannskostnaður í Reykholtsmálinu - „Hver elskar ekki þegar 4 daga frelsissvipting borgar sig?“

Mynd
Sakborningar að mæta í aðalmeðferð á mánudaginn.

Dómur í hinu svokallaða Reykholtsmáli hefur nú verið birtur og kennir þar margra grasa. Málið, sem hefur ítarlega verið fjallað um í fjölmiðlum, varðar frelsissviptingu sem átti sér stað í Reykholti í apríl árið 2024. Brotaþola, innflytjanda af palestínskum ættum, var dögum saman haldið nauðugum á heimili sínu, beittur þar miklu ofbeldi og krafinn um bankaupplýsingar. Var hann svo rændur ævisparnaðinum og sendur nauðugur úr landi.

Fjölmiðlar voru viðstaddir aðalmeðferð málsins og hefur því áður verið fjallað um öll helstu atriði málsins. Hér verða því einkum rakin atriði sem ekki hafa áður komið fram, en dómurinn telur 156 blaðsíður og þá telur dómsorð 3 blaðsíður sem ekki sést á hverjum degi. Í raun er margt um þetta mál fordæmalaust og má þá einkum nefna það að höfuðpaurinn í málinu hafði forrit í síma sínum sem tók upp öll símtöl. Mátti því í dómsal heyra hvernig Andri skipulagði frelsissviptinguna, þegar hann varð stressaður á meðan á henni stóð og loks þegar hann tók gleði sína á ný þegar honum hafði tekist að ná peningunum af brotaþola og þvingað hann úr landi. 

Sjá einnig: Sláandi upptökur spilaðar í Reykholtsmálinu - „Don’t do anything stupid“

Refsingin

Dómurinn var kveðinn upp í gær og hlaut þar höfuðpaur málsins, Andri Már Mortensen Birgisson, þyngsta dóminn, eða 8 ára óskilorðsbundið fangelsi. Dómari byggði ákvörðun refsingar á því að brotin voru framin í hagnaðarskyni af einbeittum ásetningi og algjöru skeytingarleysi gagnvart heilsu, velferð og frelsi brotaþola. Andri var skipuleggjandi og stjórnandi þeirrar atburðarásar sem málið varðaði. Eins varð það honum til refsiþyngingar að eftir að málið kom upp, en áður en það var tekið í dóm, gekk hann tvívegis undir fésektarrefsingar vegna umferðarlagabrota, samtals 800 þúsund krónur.

Sambýliskona Andra, Ingunn Rut Sigurðardóttir, hlaut þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi en hún hafði játað sök að hluta í aðalmeðferð málsins. Dómari tók fram að Ingunn hefði ekki stjórnað atburðarásinni sem hún tók þátt í en brot hennar hafi engu að síður verið framin af skeytingarleysi fyrir frelsi, velferð og heilsu brotaþola. Til mildunar horfði að Ingunn axlaði að einhverju leyti ábyrgð og sýndi iðrun. Til þyngingar horfði eins að í desember 2024, eftir að Reykholtsmálið kom upp, hafi Ingunn verið dæmd í skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás.

Faðir Ingunnar, Sigurður Gunnar Ásgeirsson, var dæmdur í tveggja og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi. Dómari tók ekki undir þá lýsingu í ákæru að Sigurður Gunnar hefði verið einhvers konar upphafsmaður að málinu. Þáttur Sigurðar væri eins nokkuð minni en þáttur meðákærðu. Engu að síður hefðu brotin verið framin af skeytingarleysi.

Yngri bróðir Andra, Pétur Már Mortensen Birgisson, var dæmdur í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi en dómari vildi ekki taka undir þá lýsingu hans að hafa verið viljalaust verkfæri eldri bróðurins en um það sagði dómari: „Ekki verður efast um að ákærða standi, eða hafi staðið, einhver ógn af ákærða Andra. Allt að einu er ekki hægt að taka undir það að ákærði hafi ekki haft sjálfstæðan vilja og hafi ekki getað spornað neitt við gjörðum sínum.“

Níels Pálmar Benediktsson hlaut eins og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi og Halldór Logi Sigurðsson hlaut hálfs árs fangelsi. Dómari horfði meðal annars til þess að Halldór og Níels hefðu ekki framið brot sín í ávinningsskyni og að ásetningur þeirra hefði hvorki verið styrkur né einbeittur.

Prins Ragnar

Við rannsókn á síma Andra fundust skilaboð sem hann sendi á tengilið sem kallaðist Prins Ragnar eftir að brotaþoli hafði verið sendur úr landi. Sagði Andri við Prins Ragnar að hann væri að koma úr fjögurra daga „missioni“ og í öðrum skilaboðum sem hann sendi síðar sama dag sagði hann: „hver elskar ekki þegar 4 daga frelsissvipting borgar sig“.

Í yfirheyrslu hjá lögreglu sagði Andri að þarna hefði verið um einkahúmor að ræða og að hann hafi verið að grínast.

Eins kom fram í aðalmeðferð málsins sem og dómnum að Ingunni og Andra fæddist barn í byrjun þessa árs. Nú hafa báðir foreldrar barnsins, föðurbróðir þess og móðurafi, verið dæmd til óskilorðsbundinnar fangelsisrefsingar.

Leiguskuldin

Við aðalmeðferð málsins var verjanda Sigurðar Gunnars Ásgeirssonar tíðrætt um meinta skuld sem brotaþoli átti að hafa skuldað Sigurði vegna vangoldinnar leigu. Dómari tók sérstaklega fram í niðurstöðu málsins að leiguskuldin, ef slíkri væri einu sinni fyrir að fara, hefði enga þýðingu fyrir málið. Um þetta segir dómari annars vegar:

„Í þessu samhengi er rétt að taka fram að ætluð, en alls ósönnuð, húsaleiguskuld brotaþola kemur hér ekki til neinnar skoðunar, er málinu alls óviðkomandi og getur allra síst réttlætt neitt af þeim raunum og píslum sem brotaþoli mátti sæta. Þá hlaut ákærða Sigurði að vera ljóst að frelsissviptingunni lauk með því að brotaþoli var sendur nauðugur úr landi.“

Og hins vegar:

„Allt tal um að brotaþoli hafi skuldað ákærða Sigurði peninga vegna ógreiddrar húsaleigu getur hér engu máli skipt. Í fyrsta lagi er allt ósannað um ætlaða leiguskuld, en auk þess eru fjárhæðir sem nefndar eru í því sambandi fjarri þeim fjárhæðum sem fyrir liggur að voru millifærðar af reikningi brotaþola. Auk þess eru þær aðferðir við innheimtu sem sakborningar í málinu hafa borið fyrir sig alfarið handan laga og réttar.“

Hafði Sigurður Gunnar lýst því fyrir dómi að hann hefði sagt brotaþola upp leigunni þar sem bróðir Sigurðar ætlaði að flytja í íbúðina. Eitt vitni lýsti því þó fyrir dómi að Sigurður hafi viljað losna við brotaþola úr íbúðinni svo hann gæti leigt hana út á Airbnb.

Sjá einnig: Brotaþoli í Reykholtsmálinu hneykslaður á verjanda „Bara fyrirgefðu, hvers konar spurningar eru þetta?“

Sjálfsmorðum hann

Áður hefur verið greint frá skilaboðum sem ákæruvaldið hélt því fram að Andri hefði sent á Níels í aðdraganda frelsissviptingarinnar. Níels hefur þó neitað að vera viðtakandi skilaboðanna. Skilaboðin eru birt í heild í dómnum og eru eftirfarandi:

„Fæ gamla Range-ann úr viðgerð sennilega síðar í dag, betra að fara á honum, þar að kitta mig aðeins, vill vera með beittan dewalt teppahríf nýjan, góða hanska ofl og er kominn með ágætis hugmynd um hvernig best sé að bjróta hann sem fyrst. Ég er vinur þinn sem koma að utan til að hjálpa þér, þar sem ég vinn við sambærileg mál og kom síðast við á möltu, eftir að ég hef komið honum í baðkarið og skorið hann úr fötunum gefnég honum tvo valkosti og held svo kjafti, ég læt hann grípa um usb lykil, svo bíð ég uppá tvo valkosti sem við tökum tillti til með eftir hvernir hann hegar sig og bregst við. Nr.1 á lyklinum voru g bar gróðu barnaklámi og snuffi sem við setju í síma hans og tölvu, hringjum svo á lögguna eg til þess kæmi og segðu hann meðð byssu og ógnandi. Nr2 við sjálfsmorðum hann. Hann hefur enga aðra valkosti nema þessa eða láta okkur fá það sem við komim fyrir og fara ef hann gerir það þá er honum frjálst að fara en við höldum eftir gögnum sem sanna að hann sé grófur barnaníðingur.“

Sjá einnig: Kannaðist ekki við skuggaleg samskipti í gegnum Signal - Rætt um að gefa brotaþola tvo hryllilega afarkosti

Flóknar bótagreiðslur og gríðarlegur lögmannskostnaður

Þau Andri, Ingunn, Pétur, Sigurður, Níels og Halldór voru dæmd til að greiða brotaþola samtals miskabætur að fjárhæð 6 milljónir króna, en ábyrgð á greiðslunni er skipt eftir því hversu stóran hlut þau áttu í brotunum. Andri á að greiða 6 milljónir en þar af 4 milljónir sameiginlega með Pétri og Ingunni, 3 milljónir sameiginlega með Sigurði og 1 milljón sameiginlega með Níelsi og Halldóri. Sambærileg skipting er tilgreind fyrir aðra sakborninga, þ.e. Pétur greiðir miskabætur að 4 milljónum sameiginlega með Andra og Ingunni, þar af 3 milljónir sameiginlega með Sigurði og 1 milljón sameiginlega með Níelsi og Halldóri, o.s.frv.

Síðan var þeim Andra, Ingunni, Pétri og Sigurði gert að greiða brotaþola 4.152.771 krónu í skaðabætur, in solidum, en það er eftirstöð þeirra fjármuna sem Andri rændi af brotaþola og deildi á milli sín og hinna. Alls var 17,66 milljónum stolið af bankareikningum brotaþola.

Víkur þá sögunni að lögmannskostnaði.

Andri þarf að greiða verjanda sínum rétt tæpar 25 milljónir í málsvarnalaun ásamt aksturskostnaði upp á 225 þúsund krónur. Ingunn þarf að greiða 16,1 milljón til síns verjanda, sem eru 3/4 hlutar fullra málsvarnalauna hans, ásamt um 169 þúsund í aksturskostnað. Pétur skipti um lögmann á meðan á málinu stóð og þarf hann að greiða 3/4 hluta málsvarnalauna þeirra beggja ásamt sama hlutfalli af aksturskostnaði. Fyrri lögmaðurinn fær 1,7 milljón og sá seinni fær 13,8 milljónir og 166 þúsund í aksturskostnað. Sigurður þarf að greiða 2/3 hluta málsvarnalauna verjanda síns, eða um 11,8 milljónir króna og 107 þúsund í aksturskostnað. Níels greiðir helming málsvarnarlauna verjanda síns, eða 6,7 milljónir króna og 125 þúsund í ferðakostnað. Níels greiðir helming málsvarnalauna síns lögmanns, eða um 2,7 milljónir og 21 þúsund í aksturskostnað.

Lögmannskostnaður sem ákærðu þurfa að greiða tl verjenda er því í heildina, ásamt aksturskostnaði, um það bil 78,6 milljónir króna. Eins þurfa ákærðu að greiða þóknun skipaðs réttargæslumanns brotaþola, um 7,9 milljónir og skiptist sá kostnaður með sama hætti og miskabæturnar og það sama á við um útlagðan sakarkostnað, um 3,2 milljónir. 

Sjá einnig: Höfuðpaurinn í Reykholtsmálinu tók gleði sína á ný eftir mikið uppnám - „Núna er maðurinn þinn kominn með úrsala“