Fréttir

Tveir ungir drengir réðust að jafnaldra sínum og tóku hlaupahjólið hans

Mynd
Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Tveir ungir drengir réðust að dreng á svipuðum aldri í Hafnarfirði og neyddu hann til að fara af hlaupahjóli sínu. Þeir tóku hjólið síðan ófrjálsri hendi en lögreglu tókst að hafa uppi á drengjunum og hjólinu skömmu síðar.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu yfir verkefni gærkvöldsins og næturinnar. Ekki kemur fram hvort drengurinn hafi orðið fyrir meiðslum eða hversu gamlir þeir sem hlut áttu að máli eru.

Bifreið gjörónýt eftir eldsvoða

Töluvert tjón varð þegar eldur kviknaði í mannlausri bifreið sem stóð fyrir utan bifreiðaverkstæði í Hafnarfirði. Slökkvilið var kallað á vettvang og tókst að slökkva eldinn en bifreiðin er gjörónýt. Þá urðu skemmdir á annarri bifreið sem stóð við hlið hennar og á verkstæðinu sjálfu.

Eldsupptök eru ókunn.

Lögregla var einnig kölluð til á tvo staði í Hafnarfirði vegna óveðursins sem gekk yfir höfuðborgarsvæðið í nótt. Annars vegar höfðu vinnupallar losnað í rokinu og hins vegar voru þakplötur farnar að fjúka. Gerðar voru ráðstafanir til að koma í veg fyrir tjón.

Í annarlegu ástandi við söluturn

Þá var lögregla kölluð að söluturni í Reykjavík vegna einstaklings sem var í annarlegu ástandi sökum ölvunar. Hann var fjarlægður af vettvangi og fluttur á lögreglustöð. Þar lofaði hann bót og betrun og var í kjölfarið sleppt úr haldi.

Í miðborg Reykjavíkur var tilkynnt um innbrot í heimahús þar sem lausamunum hafði verið stolið.

Lögregla handtók einnig mann í Kópavogi sem var í annarlegu ástandi vegna fíkniefnaneyslu. Að sögn lögreglu var hann ekki í ástandi til að vera úti meðal fólks og var því vistaður í fangaklefa þar sem ekki reyndist unnt að koma honum í annað húsaskjól.

Loks var óskað eftir aðstoð lögreglu að meðferðarúrræði í Árbæ þar sem ástandið hafði „farið úr böndunum“ eins og það er orðað. Lögregla var kölluð til að stilla til friðar.