Fréttir

Þorgerður hjólar í Sjálfstæðisflokkinn og Miðflokkinn – „Verðum líka að lifa í raunheimum“

Mynd

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra beinir spjótum sínum að Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Hún gagnrýnir meðal annars málflutning Sjálfstæðismanna um fríverslunarsamning við Bandaríkin og segir heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hingað til lands hafa sýnt að hugmyndir þeirra samræmist illa því sem bandarísk stjórnvöld séu reiðubúin að ræða.

Þorgerður lætur jafnframt þung orð falla um málflutning þingmanns Miðflokksins í tengslum við stríðið í Úkraínu og segir áhyggjuefni að heyra stjórnmálamenn „hossa Rússum“ og draga stuðning Íslands við Úkraínu í efa.

Þorgerður segir í upphafi greinar sinnar að það sé undarlega lífseig hugmynd hjá ákveðnum stjórnmálamönnum að Ísland þurfi sífellt að velja á milli Bandaríkjanna og Evrópu, aðhalds og fjárfestinga eða atvinnulífs og velferðar. Þessi hugsun hafi verið sérstaklega áberandi í málflutningi Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins.

„Ef ríkisstjórnin leggur áherslu á nánara samstarf við Evrópu er hún sökuð um að vanrækja Bandaríkin. Ef við styrkjum tengslin vestur um haf er látið eins og við höfum skipt um stefnu.“

Hún bendir á að síðastliðinn þriðjudag hafi hún tekið á móti Marco Rubio í Höfða og rætt við hann um öryggismál, viðskipti og samskipti ríkjanna. Nokkrum klukkustundum síðar hafi hún mælt fyrir bókun 35 við EES-samninginn á Alþingi. Í þessu felist engin mótsögn enda eigi Ísland að rækta tengsl sín bæði vestan hafs og austan.

Segir Sjálfstæðismenn þurfa að lifa í raunheimum

Þorgerður rifjar upp að forysta Sjálfstæðisflokksins hafi nýverið komið heim frá Washington og gert mikið úr því að Ísland ætti að stefna að fríverslunarsamningi við Bandaríkin.

Síðan hafi Rubio komið til Íslands og sagt að að mati bandarískra stjórnvalda væri tími hefðbundinna fríverslunarsamninga liðinn um fyrirsjáanlega framtíð. Bandaríkin vildu fremur ræða annars konar tvíhliða viðskiptasamninga.

„Það er auðvelt að koma fram með stórar yfirlýsingar. En það er líka ágætt að leggja við hlustir um hvað raunverulega er á borðinu. Við eigum sannarlega að sækja hvert tækifæri sem býðst í viðskiptum við Bandaríkin og finna þær leiðir sem eru færar. En þá verðum við líka að lifa í raunheimum.“

Þorgerður gagnrýnir jafnframt óskýra afstöðu Sjálfstæðisflokksins til bókunar 35 við EES-samninginn og bendir á að Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður flokksins, hafi sjálf kallað samninginn hornstein í utanríkis- og efnahagsstefnu Íslands.

„Það er ekki nóg að lýsa yfir ást á samstarfinu þegar það hentar. Samstarfi fylgir líka ábyrgð þegar á reynir. Vingulsháttur í pólitík er ekki í þágu íslenskra hagsmuna.“

Þorgerður segir stjórnarandstöðuna jafnframt reyna að stilla stórum verkefnum ríkisstjórnarinnar upp sem andstæðum, svo sem aðhaldi í ríkisfjármálum og fjárfestingum.

„Ég vil færa stjórnarandstöðunni þær fréttir að við höfum getu til að vinna að mörgum verkefnum samtímis.“

Hún bendir meðal annars á að ríkisstjórnin stefni að hallalausum fjárlögum árið 2027, ríkisstofnunum hafi fækkað og fjárfesting atvinnuveganna sé að aukast. Þá hafi tekist að ná kjarasamningum án þess að ríkissjóður hafi þurft að leggja fram tugi milljarða króna.

Segir þingmann Miðflokksins hossa Rússum

Þorgerður segir að utanríkisstefna Íslands verði jafnframt að byggjast á skýrum gildum og gagnrýnir málflutning um stuðning Íslands við Úkraínu.

„Og það er áhyggjuefni að heyra raddir sífellt verða opinskárri í því að hossa Rússum og hafa jafnframt efasemdir um stuðning Íslands við Úkraínu. Þetta viðhorf kom síðast fram í þinginu í vikunni í máli eins af þingmönnum Miðflokksins.“

Hún segir að með slíkum málflutningi sé í raun verið að gagnrýna íslensk stjórnvöld fyrir að standa með öryggi Evrópu og virðingu fyrir alþjóðalögum.

„Þarna greinir okkur á um sjálfan kjarna málsins.“

Þorgerður segir grundvallarhagsmuni smáríkja felast í því að landamæri séu virt og stærri ríki geti ekki ráðist inn í nágrannaríki sín og tekið landsvæði með valdi.

„Þess vegna stöndum við með Úkraínu. Því við stöndum með okkur sjálfum.“

Hún segir Ísland eiga að rækta tengslin við Bandaríkin og Evrópu, leita nýrra tækifæra í Asíu og fjölga viðskiptatækifærum án þess að hvika frá grundvallargildum sínum.

„Að eiga marga vini þýðir ekki að vera skoðanalaus. Að gæta íslenskra hagsmuna þýðir ekki að þegja þegar grundvallarreglur eru brotnar. Við getum bæði sótt tækifærin og staðið föst á okkar gildum. Það er ekki annaðhvort eða.“