Fréttir

Sverrir Einar dæmdur í fangelsi fyrir skattalagabrot – Þarf að greiða 105 milljónir innan mánaðar

Mynd
Sverrir Einar þarf að greiða himinháa sekt samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur en sleppur við atvinnurekstrarbann.

Sverrir Einar Eiríksson athafnamaður hefur verið dæmdur í 24 mánaða fangelsi fyrir skattalagabrot í tengslum við skemmtistaðinn B. Þar af 21 mánuð skilorðsbundinn. Auk þess þarf hann að greiða tæplega 105 milljónir króna í sekt í ríkissjóð á innan við fjórum vikum frá uppkvaðningu.

Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 9. október sem birtur var í dag.

Fram kemur að rannsókn hafi hafist í september árið 2024 þegar bú félags hans var tekið til gjaldþrotaskipta. Voru brotin framin á árunum 2021 til 2023. Var hann ákærður fyrir 59,7 milljóna króna undanskot.

„Samkvæmt rannsóknarskýrslu SRS var það niðurstaða rannsóknarinnar að ekki hafi verið
staðin skil á staðgreiðslu opinberra gjalda, innan lögboðins frests, vegna greiðslutíma-
bilanna janúar til og með desember 2022 og janúar til og með júní 2023. Þá hafi ekki
verið staðin skil á virðisaukaskatti, innan lögboðins frests, vegna uppgjörstímabilanna
september-október og nóvember-desember 2021, janúar-febrúar til og með nóvember-
desember 2022 og janúar-febrúar 2023,“ segir í dóminum.

Sverrir Einar stýrði daglegum rekstri og fjármálum félagsins.

„Sagði ákærði að staðgreiðslu opinberra gjalda hefði ekki
verið skilað á réttum tíma vegna erfiðleika í rekstrinum og virðisaukaskatti hefði ekki
verið skilað á réttum tíma þar sem ekki hefðu verið til peningar. Peningarnir hefðu farið
í það að halda rekstrinum gangandi,“ segir enn fremur.

Kröfu ákæruvaldsins um atvinnurekstrarbann var hafnað þar sem hann sé þegar í slíku banni fyrir eldri brot. Sverrir Einar þarf hins vegar einnig að greiða um 4 milljónir króna í lögmannskostnað.

Dóminn má lesa hér.